18. nóv. 2008

Nyheder

Jebb langt síðan síðast og alskyns fréttir.

Við höfum fengið nýja íbúð til leigu sem er mun ódýrari en sú sem við sitjum í núna og einnig betur staðsett í borginni. Hún er rétt við trianglet á Österbro.

Nú annars erum við Jóla Jói bara á fullu í skólanum og ég að vinna á Sushistað í Fredreksberg og líkar stórvel. Við höfum einnig ákveðið að vera hér í Jólaborginni yfir jólin. Þessi ákvörðun var tekin með hliðsjón af kreppu en samt einna helst náminu þar sem við bæði munum skila af okkur stórum verkefnum snemma í janúar.

Allra mestu fréttirnar eru nú samt þær að Eirún systir er að koma á föstudaginn með Önnu og Egil með sér. Þau ætla að vera yfir helgina og er mikill spenningur í herbúðunum á Hulgårdsvej

yfir og út

21. okt. 2008

Jæja...

Nenni ekki ad skrifa um kreppu. Ætla frekar ad benda á schnilldarband frá Texas. Heita Explosions In The Sky. Gedveikt ad hjóla med thessa músík í eyrunum.

http://www.youtube.com/watch?v=pP09piedtAk

Thetta er fyrsta lag af plötunni All Of A Sudden I Miss Everyone, sem er bara schnilld.

Getur einhver bent mér á hvernig ég get sett vídjóid beint hér inn, en ekki bara linkinn. Merkilegt nokk thá kann ég thad ekki.

10. okt. 2008

Grínlestin brunar!

Laglega komið fyrir okkur núna.

Smella á þennan ótrúlega langa hlekk fyrir neðan.

http://cgi.ebay.co.uk/Country-for-sale-ICELAND-99p-start-price-no-reserve_W0QQitemZ320308801162QQcmdZViewItem?hash=item320308801162&_trkparms=72%3A1301|39%3A1|66%3A2|65%3A12|240%3A1318&_trksid=p3286.c0.m14

Spurning um að taka þetta bara á raðgreiðslum.

Meira ruglið allt saman.

6. okt. 2008

Ef ég væri ríkur...

Þá er það víst alveg morgunljóst að tilraun mín til að hagnast á hlutabréfum hefur með öllu mistekist.

Ætli Sparisjóðurinn sé til í að senda mér Stofnfjárbréfin mín í pósti? Get í það minnsta notað þau til að skeina á mér rassinn.

En við Tinna erum ekki af baki dottin. Fengum okkur heilan líter af Dumle ís, sem kláraðist á meðan við hlustuðum andaktug á Geira Smart flytja andvarp. Á eftir ætla ég svo að fá mér ostapopp.

Borða til að gleyma.

Á morgun kemur nýr dagur og þá ætla ég í ræktina.





4. okt. 2008

......og kreppa.........og slaka

Orðið kreppa minnir mig á morgunleikfimina á Gufunni. Og þar eð landlæknir hefur beðið fólk um að tala varlega til að auka ekki á kvíða landans þá velti ég fyrir mér hvort einhver hafi veitt "morgunleikfimikennurum" Ríkisútvarpsins tiltal.

........og kremja.........og slaka

eða

.......og herpa.........og slaka

Einhverjar tillögur?


Annars fórum við Tinna í smá leikfimitúr til Svíþjóðar um síðustu helgi. Áfangastaðurinn var Mörrum á Skáni og ekki skánaði kajak-bakterían við það.





29. sep. 2008

Klukk

Ég hef víst verid klukkadur á netinu, hvernig sem thad er nú hægt. Hér eru svo nidustødurnar:

4 størf sem ég hef unnid um ævina: Bladberi fyrir Dagbladid í einn mánud (febrúar), málari, løggumann og raft-gæd.

4 kvikmyndir sem ég held upp á: Med allt á hreinu, Ace Ventura, Kolya, Hercules in New York (mæli med ad allir tékki á henni).

4 stadir sem ég hef búid á: Keflavík, Reykjavík, Kaupmannahøfn, Hótel Mamma.

4 sjónvarpsthættir sem mér líkar: House, The Sopranos, The Simpsons, South Park.

4 sídur sem ég skoda daglega (fyrir utan blogg): Kayakklúbburinn, playak.com, Mogginn, Pósturinn minn.

4 matarkyns uppáhøld: Gelatín, Transfitusýrur, Kaffi, Kebab.

4 bækur sem ég les oft: Ótrúlega slappur í bókalestri. Kláradi sídast Flugdrekahlauparann og var sáttur.

4 stadir thar sem ég vildi vera núna: Í sundi med Agli, í midjum class 4 pool-drop ródri einhvers stadar í heiminum (helst thar sem hitinn er sæmilegur), á ferdalagi um Ísland med Tinnu og Agli, í eldhúsinu hjá afa í Gardinum med kaffibolla í hønd.

4 manneskjur sem ég vil klukka: Davíd Oddsson, Dønsku Drolluna, Atla sundlaugarvørd, Mel Gibson.

14. sep. 2008

Laung pása

Á morgun byrjar hin raunverulega önn hjá mér. Síðustu þrjár vikur var ég að vinna í verkefni sem tengist þeirri línu sem ég valdi í náminu, þ.e.a.s. arkitektúr. Við áttum að hanna svið fyrir Jazz-hátíðina sem haldin er hérna ár hvert. Áttum líka að staðsetja sviðið í miðborginni. Gekk ágætlega. En semsagt, á morgun byrjar fjörið fyrir alvöru.
Tinna er byrjuð á rannsókninni sinni á leikskóla hér í borg. Allt voðalega mikið leyndarmál. Svo mikið leyndarmál að að hún vill ekki einu sinni segja mér hvar leikskólinn er. Kannski er hún að vinna fyrir einhvers konar greiningardeild hjá danska ríkinu. Hver veit? Hún keypti sér allavega myndavél um daginn.
Skelltum okkur á ströndina í gær. Leigðum okkur sjókajaka og rérum í kringum eyjuna á Amager Strand. Ansi skemmtilegt og meira að segja gafst tækifæri til að sörfa aðeins innan um alla hina sem mættir voru til að notfæra sér vindinn; seglbrettafólk og drekabrettunga (mín þýðing á kitesurfer). Sáum samt ekki Flugdrekahlauparann.

Jæja, tími fyrir enn meira kaffi - læt fylgja með mynd af draumabílnum:-)



1. júl. 2008

31. maí 2008

Köben 28

Sól og sumar og ég komin í frí, tíminn líður svo hratt. Á tímabili gat ég ekki bloggað um annað en analysispappíra og ritgerðir, en nú er það tímabil í pásu fram á næsta haust. Get ímyndað mér að fólk bíði spennt ;) Á meðan Jói situr sveittur inni í skólastofu nýt ég lífsins hér í Köben, glugga í nokkrar fræðibækur, fer á kaffihús og flatmaga í sólinni. Já, lífið er ljúft...

Í dag á að verða 28 stiga hiti og Joe hefur tekið sér pásu frá prófverkefninu svo við ætlum að skella okkur á kayak, svo í grill í aften.

Þar til næst

26. maí 2008

Í gærkvöld gengum vid frá framlengingu á leigusamningnum ad íbúdinni. Thad tryggir okkur húsnædi til 1.júlí á næsta ári. Skál fyrir thví!

Samningavidrædur voru hvorki langar né erfidar - vid sögdumst vilja leigja lengur og Rassálfur (Razaul heitir hann víst) sagdi bara no problem. Allt skjalfest en ekki thinglýst. Ætti ad duga.



Tinna á ad skila ritgerdinni sinni inn á morgun og er thá komin í sumarfrí. Ég klára hinsvegar föstudaginn 13.júní réttri viku fyrir 35 ára afmælisdaginn minn. Hef reynt ad hugsa ekki of mikid um thad hversu hundgamall ég er ad verda. Klædi mig frekar eins og unglingarnir gera - med pokadar buxur lafandi nidur fyrir rassgat og alltaf med stór heyrnartól á hausnum.



Lífid snýst jú um ad vera töff.



Fyrir einhverjum dögum sídan fann Tinna sig knúna til ad kalla mig merkjafrík - eda merkjamellu svo ég noti hennar ord. Mér brá svolítid vid thetta. Sat í Fat Face buxunum mínum og Cintamani bolnum mínum vid HP fartölvuna og vissi ekki alveg hvernig ég átti ad bregdast vid. Ákvad ad hjóla í ræktina til ad reyna ad vinna úr thessu.



Skellti æfingafötunum og Björn Borg snyrtibuddunni í Burton bakpokann, klæddi mig í nýju Sweet peysuna, fór í Teva skóna, smellti á mig Sweet hjálmnum og kveikti á iPodinum. Ákvad ad skilja Motorola símann eftir heima. Stökk á bak Schwinn fjallahjólsins og gaf allt í botn.



Tók vel á í ræktinni. Reyndi ad fá útrás á helv..... tækjunum. Gat samt ekki hætt ad hugsa um thad sem hún hafdi sagt. Var hún ad kasta steini úr gródurhúsi? Eda fattar hún ekki thetta med ad vera töff?



Jæja, sé á G-Shock úrinu mínu ad klukkan er ad verda fimm. Hef afkastad heilmiklu í dag. Thó ekki fengid svar vid spurningunni hvort fleiri lesbíur séu med meirapróf heldur en hommar - hlutfallslega.



Veit thad einhver?




Hér er einn hress

19. maí 2008

Veit einhver um íbúð

Frábært að hafa sól og hita og allt það, en slíkt veður tosar bara svo ferlega í mann. Hef þurft mikinn og yfirnáttúrulegan sjálfsaga síðustu tvær vikur til að halda mér inni við lærdóm. Hef staðið mig vonum framar þó svo stundum hafi nú eitthvað verið um svindl. Núna er hinsvegar ekki sól og spáin er fín fyrir vikuna, smá hiti og sól en ekkert of mikið. Anyways þá verð ég að halda vel á spöðunum því ég skila ritgerðinni á þriðjudaginn eftir viku, 27 maí. Endalaus gleði og hamingja verður þá... ó já.

Erum í íbúðarleit ef einhver veit um ódýra íbúð, á góðum stað í köben, til leigu allavega í ár væri æði að fá að vita af því.

yfir og út

11. maí 2008

Sumar

Fyrsti sumardagur var eflaust í gær, 25 stiga hiti og alles. Rosa árekstur fyrir framan hjá okkur í nótt. Rumskuðum nú ekkert við það, en sáum þegar litið var út um stofugluggann í morgun að nokkrir bílar voru á víð og dreif og löggan eitthvað að vesenast meðan verið var að pikka upp bílana. Það eru nú samt enn hérna nokkrir pínu klesstir.

Helgin er bara búin að vera mesta lúxus ever, fórum í tívolíið í gær með G-unum þrem og Birni, afa jóa, svo rosa gott út að borða og svona. Í dag sleiktum við sólina, skelltum okkur á kajak, ég er svona rústrauð. Verð samt brún á morgun... svona er þetta bara ;)

Sumar og sælukveðjur yfir hafið

10. apr. 2008

Hverdagen



Lífið gengur sinn vanagang hér á Hulgårdsvej, nú er sólin farin að skína enn meir og dagurinn að lengjast. Magnað vorveður þessa dagana, ég vil meina að það stefni í gott sumar... alla vega þangað til við förum til íslands.


Ég er núna alveg á yfirsnúningi í skólanum, analysis pappírar, ritgerð og munnlegt próf. Í gær var svo verið að benda okkur á það að fara að huga að næstu önn og það yrði mikill lestur í sumar. Já já undirbúningur fyrir næstu önn að hefjast ofan í allt annað, fékk vægt sjokk en er farin að sjá skýrt aftur, þetta reddast. Frábært líka að hugsa til þess að eftir ár verð ég komin með mastersgráðu í uppeldis og mannfræði.


Fitnessdk hefur núna undan farna viku fengið að finna fyrir okkur Jóa, jú jú við erum byrjuð í ræktinni, legg ekki meira á ykkur. Síðustu helgi var afmælistilboð, fitnessdk 7 ára og því kostaði fyrsti mánuðurinn 7 krónur, skelltum okkur auðvitað á tilboðið. Sjáum svo hvað verður.

Ég hress að tala við pabba á skypinu.
Þar til næst

8. apr. 2008

Daglegt mál

Í rannsóknum mínum hef ég komist að því að Danir sletta á íslensku.





Frekar þó eldri kynslóðin.





Og þau eru ligeglad med det.



4. apr. 2008

Föstudagur til fróðleiks

Í gær stóð ég fyrir framan hóp af dönum og leiddi þá í gegnum töfra byggingarlistarinnar, á dönsku. Það gekk alveg glimrandi vel, allavega gaf svipurinn á þeim flestum til kynna að þeir skildu mig. Sem er gott.

Hef einmitt tekið eftir því hvernig dönskukunnáttan virðist vera þrepaskipt. Suma daga er eins og maður sitji fastur og allt kemur einhvern veginn öfugt út úr manni en svo aðra daga þá kjaftar á manni hver tuska - og allir virðast skilja blaðrið. Þannig hefur þessi vika verið. Sem er gott.

Vorið er komið. Sem er gott.

Þarf að komast á kajak.

28. mar. 2008

Nýjasta tækni og vísindi

Vorid er komid og grundirnar gróa.


Nú vakna ég vid thad ad blessud sólin, sem allt elskar, skín eins og hún fái borgad fyrir inn um svefnherbergisgluggann á Hulgårdsvej númer 122.


Ég kann vel vid thetta - finnst ég vera staddur í svona midri bíómynd á Hallmark-stødinni.


Tinna, hins vegar, er ekki alveg jafn sátt. Til ad fordast sólina, sjálfa forsendu alls lífs hér á kúlunni, hefur hún brugdid á thad rád ad vefja svørtum stuttermabol yfir hausinn á sér.


Minnir svolítid á adferd strútsins.


Í einni af mørgum ferdum mínum um netheima rakst ég á snilldarlausn fyrir thá sem finnst ad sólin eigi ekki ad byrja ad skína fyrr en their eru vaknadir.





25. mar. 2008

Afmæli Keisarans


Eftir ca. þrjá tíma verða liðin nákvæmlega fimm ár síðan þessi ungi drengur kom í heiminn á Sjúkrahúsinu í Keflavík.


Hann man líklega minna eftir því heldur en ég. Hann byrjar oft setningar á því að segja "einu sinni þegar ég var lítill........" en hann hefur aldrei sagt mér frá þessum atburði.


Allavega, Bifrestingurinn hann Egill Máni er fimm ára í dag og að sjálfsögðu óskum við honum til hamingju með daginn.

24. mar. 2008

Óbyggðirnar kalla

Þar sem við eigum að heita fátækir námsmenn þá beitum við öllum tiltækum ráðum til að spara. Nýjsta uppátækið hjá Tinnu er að sækja sér bíómyndir á netinu, algerlega gratis, eins og sagt er uppá hádönsku. Hún hefur nú þegar sótt tvær nýlegar myndir og ekkert lát virðist á. Sótti annars vegar Flugdrekahlauparann og hins vegar Into The Wild.
Ég gersamlega límdist við bókina um flugdrekahlauparann í fyrra og fannst hún mjög góð en er pínu smeykur við að horfa á myndina. Held líka að hún bæti litlu við.
Ákvað hins vegar að horfa á Into The Wild. Sean Penn leikstýrir þessari mynd sem fjallar um ungan mann sem ákveður að gefa uppá bátinn hið veraldlega kapphlaup og lifa úti í óbyggðum. Okei, ég skal viðurkenna það að það er eitthvað rómantískt við hugmyndina en hann hefði mátt undirbúa sig mun betur. Hann var illa dressaður fyrir óbyggðirnar og greinilegt að hann hafði aldrei verið í skátunum. Svo fannst mér kajak atriðið sérlega slappt. Hann segist vera vatnshræddur en fer og kaupir sér kajak - treður í hann dótinu sínu og smellir sér af stað - eins og ekkert sé. Pönnsar(íslenska fyrir punch-mikið notað í kajakgeiranum) svo beint í ginið á stærðarinnar holum og haggast ekki. I´m just not buying it! Soldið svona eins og þegar söguhetjur í íslenskum myndum eiga að vera á leiðinni norður í land en eru svo bara að rúnta á Grindavíkurveginum. Mér finnast svona smáatriði skipta máli.

Egill var hjá okkur um síðustu helgi. Héldum smá afmælikaffi á laugardaginn með blöðrum og alles. Rosa gaman. Fékk hjól í afmælisgjöf - danska eðalsmíð frá Taarnby hjólafabrikkunni. Þegar maður er fimm ára þarf maður að eiga gott hjól. Það eru engin ný vísindi.




Frábært að fá Egil og múttu í heimsókn



Annars hafa páskarnir verið frekar rólegir hjá okkur. Fengum allra minnstu gerð af páskaeggjum til að hafa með kaffinu - látum það duga.

Skólinn byrjar á morgun af fullum krafti.

Jæja, tími á annan bolla.

18. mar. 2008

Egill på besøg

Það helsta sem hefur gerst hér á Hulgårdsvej er að litli prinsinn kom í heimsókn yfir helgina með ömmu sinni. Þau komu á fimmtudagskveldinu og strax morguninn eftir var honum færð afmælisgjöfin, hjól. Eins og við var að búast varð hann ekki lítið glaður með gripinn og vildi strax fara út að hjóla. Hjólatúrarnir voru því ófáir um helgina og heimsóknir á leikvöllinn sömuleiðis. Hjólið er sko með bjöllu og böglabera sem var nýttur óspart. Egill er náttlega aðal-greinasafnarinn og böglaberinn yfirleitt með nokkrum greinum danglandi útí loftið, öðru hjólafólki til ómældrar ánægju. Á laugardeginum héldum við smá afmælisveislu en á sunnudeginum var fákurinn þveginn vel og vandlega komið fyrir í pappakössum fyrir flugið. Þá um kvöldið lögðu þau aftur af stað til íslands eftir ótrúlega notalega helgi.

Í gær var bara alíslenskt veður, rok og snjókoma, ótrúlegt en satt þá eru enn smá leifar af snjónum hér á götunum. Annars mun lærdómurinn örugglega taka yfir þessa páskana...

Þar til næst

6. mar. 2008

Analysis paper

Já, já ég er bara í því að skrifa analysis papíra þessa dagana og náttúrlulega að lesa og lesa. Hef sjaldan verið jafn skipulögð og einmitt núna. Einn papír á viku svo á ég að skila þeim í næstu viku þannig að ég er að fara yfir þá og betrum bæta. Sendi þá síðan til vejledarans míns og fæ smá gagnrýni. Eftir það held ég ótrauð áfram í næstu 5 papíra og þá á þessi kúrs (hugtök í mannfræði) að vera búinn, ef allt fer að óskum.

ble ble ble bla... stefni á að komast á kayak, kayak, kayak.

4. mar. 2008

Rák í rørum

Er ad læra um vektora.

Thar sem ég sat vid tølvuna og reyndi ad klóra mig áfram datt mér í hug ad gúggla bara. Fékk alls kyns sídur upp med svona misbrúklegu støffi. Thar á medal eina færeyska, ansi hreint góda. Ekki vegna thess ad ég gat notad eitthvad af henni heldur vegna thess ad hún fékk mig til ad brosa út í bædi. Thetta er námsskrá frá Fródskaparsetri Føroya.

Dæmi:

Skeiðið snýr seg um at skilja hvørjar kreftir elva til rørslur í vætu og gassi út frá alis- og støddfrøðiligum hugtøkum. Henda vitan er grundleggjandi, um ein skal rokna uppá rák í rørum, rennum, sundum og á opnum havi ella í lufthavinum.

Numeriskar metodur snúgva seg um mannagongdir til at finna loysnir á støddfrøðiligum problemum við teldu, eitt nú til at rokna virðið av einum integrali

Hóskandi telduforrit verða nýtt.

Partur av undirvísingini fer fram við jarðfrøðiligum útferðum í føroysku náttúruni.

Færeyingar eru snillar!


28. feb. 2008

Eurovisionbandið

Pínu klént nafn á bandi, en hlustaði á lagið í morgunn og finnst það bara nokkuð eurovisionlegt, hresst með upphækkun og svona. Ætla nú ekki að fara að spá neinu en er sátt við þetta framlag, svo það sé á hreinu.


Nú hafa bæði matarklúbbsskvísis og Gutti og Magga verið hjá okkur, sem var rosa gaman.
Við hinsvegar sáum glufu í stundarskránni og ákváðum því að skella okkur til sverge yfir helgina. Fengum flug fyrir slikk og svo á Viktor afmæli, alltaf gaman að fara í veislur. Kannski hún verði haldin í Kattholti

27. feb. 2008

21. feb. 2008

Frokost

Sólbadsstofu-strídid er skollid á!


Í gær var sólbadsstofa á Østerbro sprengd í loft upp.

Ég neyddist til ad afpanta.


Løgreglan handtók tvo einstaklinga sem taldir eru vidridnir málid, sjá myndir.


Leynikisi er, thrátt fyrir blítt vidmót, ótrúlega slóttugur og thrauttjálfadur!




Vitordsapi Leynikisa - rosa hress en líka rosa hættulegur!



Ljósalampar ERU hættulegir.


ps. Hvorugur hefur komid vid søgu løgreglunnar ádur.

13. feb. 2008

smá update

Skelltum okkur á myndina Foreldrar í síðustu viku, virkilega góð mynd.
Fórum til Boga í matarboð á lau. þar steikti maður matinn sinn sjálfur, ansi hreint gaman.
Kíktum svo á litlu tvibbana á sun. þvílíkir endalausir snúðar sem þeir eru.
Svo er von á megninu af matarklúbbskonum (6 af 9) yfir helgina, mun sú fyrsta koma í hús á fim. svo týnast þær inn yfir helgina. Verðum allar samankomnar á lau. og þá verður gleði. Stúlkurnar munu allar gista hjá okkur, búin að redda stórri vindsæng og allt reddí.

Skólinn er samur við sig, hjá okkur báðum.

þar til næst...

4. feb. 2008

Tignes Val Claret... draumur í dós

Komin til Köben að nýju eftir æðisgengna snjóbrettaferð til Tignes Val Claret. Ferðin var algert brill þrátt fyrir 26 tíma rútuferð og hótelherbergi sem minnti á vinnubúðir. Smá beddi sem þurfti að draga annað rúm undan svo úr yrði tvíbreitt rúm (agalega hótel like), nokkrar brúnar rákir á einum veggnum (erum ekki viss hvaða efnablanda það var) svo til að kóróna herbergið sjálft var mynd af lest sem runnið hafði útúr lestastöð (sýndi hinn rétta anda herbergisins). En þrátt fyrir að bærinn liti út fyrir að vera eitthvað austur-þýskt gettó og hótelherbergið mjög spes voru brekkurnar æði. Svæðið sjálf er frábært skíðasvæði.

Við renndum okkur ca. 6-7 tíma á dag í sól og vetraryl nær alla daga, fórum í brettaparkið (þar sem ég sýndi óneitanlega mögnuð tilþrif) og ferðuðumst um svæðið. Vorum bara með nesti í poka og heitt á brúsa og komum okkur fyrir á góðum stað til kaffineyslu. Síðasta daginn snjóaði ferlega æðislegum púðursnjó og breyttumst við í börn eða kannski frekar unglinga. Brunuðum massíft utanbrauta og púðruðum og ulltum um í brekkunum. Náðum frábæru rennsli þennan dag. Jón Skírnir kíkti á okkur frá Sviss og renndi með okkur síðustu tvo dagana, þá voru engin vettlingatök og við náðum þvílíkt að þrykkja brekkurnar.

En eins og fyrr sagði þá erum við aftur mætt til KBH og byrjuð að lesa og læra á fullu. Þessi önn mun snúast hjá mér um Antropolokiske og Pædagogiske begrebsliggörelse og Jói mun demba sér á bólakaf í raðhúsagerð.

24. jan. 2008

Sællt kæra fólk

Nú er ég komin að nýju til köben, hún tók vinalega á móti mér með vorveðri og alles. Nú er bara tónlistin í botni því pökkun er í algleymi fyrir skíðaferðina. Vitum ekki enn hversu löng þessi blessaða rútuferð verður, menn eru með gisk í gangi, allt frá 15 til 24 tíma. Við erum allavega búin að kaupa nesti, hlaða ipodana og finna góðar bækur til lestrar, svo bara við öllu búin.

Febrúar lítur út fyrir að verða alger brill mánuður, audda skíðaferðin, svo koma MATARKLÚBBS skvísurnar, svo ætla Gutti og Magga að kíkja.

Þar til næst

16. jan. 2008

Henning renning

Til að loka á fleiri kaldhæðniskomment frá saumaklúbbnum hennar Tinnu þá kemur hér glóðvolg færsla.

Ég kom fljúgandi hingað til Kaupmannahafnar aftur þann 6. janúar. Flugið var ágætt. Ég gerði ítrekaðar tilraunir til að sofna en þær mistókust allar sem ein. Sat bara með lokuð augu og iPodinn í botni og pældi í því hvers vegna ég næði ekki að sofna. Notaði hina margrómuðu útilokunaraðferð og komst að þeirri niðurstöðu að andremma væri skýringin.Ekki mín eigin, heldur annaðhvort konunnar sem sat fyrir aftan mig eða konunnar sem sat við hlið mér. Grunur minn beindist þó frekar að þeirri fyrir aftan. Þó ég hafi enga læknisfræðilega menntun þá skýt ég á tannholdsbólgu eða vélindabakflæði.

Skólinn byrjaði svo daginn eftir. Ákveðið var að fækka um einn bekk hjá okkur og það var gamli bekkurinn minn sem var leystur upp. Við áttum að sjálf að sjá um að dreifa okkur í aðra bekki. Ég náði að sjanghæja sjálfan mig inní nýja grúppu sem flutti sig svo yfir í nýjan bekk. Þar er mjög skemmtilegur mórall og hlutirnir rúlla fínt. Erum núna í þriggja vikna verkefni þar sem eigum að taka fyrir mismunandi tímabil í arkitektasögunni, skrifa skýrslu og kynna svo með powerpointi og tilheyrandi. Minn hópur á að taka fyrir nútímann, þ.e.a.s. ca. frá 2000 og til dagsins í dag. Förum samt aðeins lengra aftur en til ársins 2000. Ætlum að fjalla almennt um það sem er að gerast í arkitektúr í dag og taka eina byggingu fyrir og nota sem dæmi. Byggingin sem við tökum fyrir hýsir IT-Universitetet og er teiknuð af Henning Larsen, þeim sama og teiknaði óperuna hérna og hið margrómaða tónlistarhús sem er að rísa í Reykjavík. Held að hann sé ekkert skyldur Henning sem rak hjólreiðaverkstæðið í Keflavík á sínum tíma. Það er þó ekki útilokað.









Litla myndavélin mín hefur komið að góðum notum við gagnaöflun. Ég er búinn að hjóla ansi hreint mikið undanfarna viku til að skoða og taka myndir. Mjög skemmtilegt, bæði að hjóla og taka myndir af flottum húsum. Eins hef ég hjólað í þrígang út á bókasafnið hjá arkitektaskólanum hérna til að fá lánaðar bækur og blöð. Aðeins 11 km löng leið. Ef iPodinn er með í för þá tek ég ekkert eftir því hvað þetta er langt. Gaman að virða fyrir sér húsin á leiðinni.


Læt fylgja með nokkrar myndir sem teknar voru um hátíðarnar.



Egill flottur með bindi og alles


Tinna með puttann á tískupúlsinum


Verið að reisa sér þak yfir höfuðið