Stóra-Laxá 2012 !
1. ágú. 2012
11. mar. 2012
Sweet 2012
Vilji menn vera töff í ánni, kemur eiginlega bara ein tegund af hjálmum til greina; Sweet. Þeir fitta vel, eru þægilegir, sterkir og, síðast en ekki síst, töff.
Sjálfur á ég í augnablikinu tvo og langar í fleiri.
Strutterinn er töff fyrir leikbátinn og í raftið. Fáir raftgædar eins töff og þeir sem eiga svona.

Rocker er töff fyrir allt. Í raftið, leikbátinn, river-runnið og creekið. Fittar vel og er hlýr og þægilegur. Hentar líka sem skíða/brettahjálmur.

Wanderer er töff í allt heila klabbið. Samt finnst mér hann minnst töff af Sweet hjálmunum. Aðeins of mikill BMX fílingur fyrir kajakinn.

Fyrir ofurhugana er það svo Rocker Fullface. Þessi ætti að sjá til þess að stellið haldist á sínum stað. Guli liturinn kemur vel út.

27. feb. 2012
LOMO Renegade
Eftir að hafa skoðað og pælt heilmikið í þurrgöllum - ákvað ég að smella mér á galla sem heitir Renegade og er framleiddur af LOMO í Skotlandi. Merki sem ekki margir þekkja hér - en ég tók sénsinn - og sé ekki eftir því. Gallinn er bara fáanlegur í einni litasamsetningu - gult/svart. Hann er ekki Gore-Tex. Rennilásinn er þvert á bakinu og svo er pissulás að framan og tvöfalt lag þar sem svuntan fer undir. Háls- og úlnliðstúttur eru úr latexi - ásamt sokkunum.
22. feb. 2012
Five Ten Water Tennie
Jæja - orðið allt of langt síðan eitthvað gerðist hér.
Ég er alltaf að skoða nýtt dót - og ákvað að deila mínum pælingum hérna.
Smá Old School fílingur.
Mjög tæknilegt allt saman.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)