21. des. 2007

Á leið til Íslands.

Núna er ég búin að skila ritgerðinni og Jói búinn að klára sína önn, þannig að nú er bara að pakka og gera klárt fyrir Jólaferðina.

Fórum á Det Lille Apotek í gær, agalega flottan julefrokost með öllu tilheyrandi. Dönsk síld og ákavíti, ótrúlega jólalegt eitthvað.

Verður gaman að hitta fjölskylduna og þá sérstaklega hann Egil

Gleðileg Jól

19. des. 2007

jólaspól

Blessuð sértu sveitin mín,
sumar vetur ár og daga...

Fyrsta textabrotið sem kom upp í huga mér þegar ég kláraði að skrifa conclusionið.

Já, já ritgerðin svo til búin, var í yfirlestri hjá Jóa í morgun og svo á blessaður eftir að fara yfir niðurlagið og svo get ég bara skilað JIBBÍ.

Ætla núna í bæinn og kaupa fallegar plastmöppur um þessi þrjú eintök ,sem eiga að fara til skólans. Svo ætla ég að lunchast smá og kaupa gjafir.

Jólin eru að koma,
jólin eru að koma,
þau koma allt of hratt.

(þetta er jólalag sem kannski aðeins færri þekkja en textann fyrir ofan)

13. des. 2007

Ritgerð

Nho konu kvölin var sammála mér.

Ritgerðin mun ekki steyta á skeri heldur sigla í höfn...

Nú er bara að fylgja línunni og klára fyrir heimferð

hó hó hó

11. des. 2007

Kvikmyndagerd

Í gær sótti ég mér lítid og krúttlegt forrit sem gerir einfeldningum kleift ad klippa til vídjó og setja tónlist inná. Hef haft áhuga á thessu ansi lengi. Reyni t.d. alltaf ad finna tónlist sem hæfir thví sem ég er ad gera hverju sinni. Thannig passar ótrúlega vel ad hlusta á Sigur Rós um leid og ég hjóla í eda úr skólanum í rigningu. Rigningin virkar thá sem n.k. effect, setur punktinn yfir i-id. Ég hlustadi reyndar undantekningarlaust á Sigur Rós sl. vor thegar ég var ad fljúga á milli Reykjavíkur og Egilsstada. Ef thad var bjart yfir og gott útsýni thá leid mér oft eins og ég væri staddur inní einhverju myndbandinu theirra og gat alveg gleymt mér. Kannski einhvers konar dagdraumur. Ekki minnkadi heldur thjóderniskenndin vid thetta.

En aftur ad thví sem ég ætladi ad segja. Ég sem sagt nádi í forrit frá Microsoft sem heitir Movie Maker 2. Aldrei thessu vant thá las ég megnid af leidbeiningunum ádur en ég byrjadi ad fikta. Hefdi alveg getad sleppt thví, svo einfalt er forritid. Bjó til mitt fyrsta listaverk og setti tónlist vid. Ansi hreint skemmtilegt og audvelt ad gleyma sér í thessu. Afraksturinn má sjá á www.playak.net í videorekkanum undir nafninu Sjoa 2007.

Núna sit ég í skólanum í verkefnavinnu. Eigum ad kynna á føstudaginn og erum ekki nærri thví tilbúnir. Hef trú á thví ad thetta muni reddast, hefur gert thad hingad til.

10-4

9. des. 2007

Ritgerð

Uppkast af ritgerðinni á að fara til leiðbeinandans á morgun svo nú er það í yfirlestri hjá dr.Jóa.

Ritgerðin er öll að smella saman, að mínu mati...

vona bara að leiðbeinandinn sé á sama máli... :-/

4. des. 2007

Well, well

bara kominn 4.des. hó hó hó

Ég er á fullu að lesa og lesa og skrifa og skrifa, búin að finna þetta yndislega bókasafn þar sem ég er umvafin bókum. Þetta er ótrúlega kósý, það er bara eitt borð á milli bókahillna sem ná frá gólfi upp í loft og lofthæðin er ekkert smá. Örugglega hundrað ára gamalt bókasafn, jemeinaða ;)
Jói er að læra að teikna, svo hann teiknar þá, samt aðallega í tölvu.

Köben er kominn í sinn jólabúning, alla vega búið að skreyta, tendra ljós og svona. Veðrið er samt meira haust en vetrarveður, ef ég á að greina það eitthvað.

Jebb jebb annars bara allir hressir, like always.

28. nóv. 2007

Stereo Total - holiday innn

Meðan Jói er sniðugur

skrifa ég bara blogg sem byrja á M, ótrúleg uppgötvun.

Fórum á brillíant tónleika STEREO TOTAL á sunnudaginn í Christianiu. Fjárfestum í 2 CDum og nú rúlla þeir bara, hressleikinn í fyrirrúmi.

Holliday Innn

eitt af mínum uppáhalds

love it.

26. nóv. 2007

Sniðugheit

Jæja, ég ætla að halda áfram að vera sniðugur. Ef marka má síðustu færslu þá fær fólk bara aldrei nóg af svona sniðugheitum, og þá sérstaklega í jólastressinu. Einmitt þegar myrkrið umlykur allt og kuldaboli bítur í kinnarnar er svo gott að geta hlegið.
Vitið til, það birtir um síðir.

24. nóv. 2007

Gaukur í krukku

Þessi er hress:





Sá um daginn páfagauk sem hjólað hafði verið yfir.


Tjah......nema þetta hafi verið Harakiri-gaukur!





Hér er svo enn meiri hressleiki:


Gasalega hress náungi!
Tinna er líka hress!
Og ég!
Veriði hress!
Bless!!

22. nóv. 2007

Montblogg

Hópurinn minn var að fá út úr kúrisinum og við vorum yfir meðallag (miðað útfrá öllum hópunum), sem þýðir að við vorum með þeim betri. Það eru engar einkunnir í þessum kúrs, bara staðið eða fallið.

Engar meðalmanneskjur jibbí kóla... eða sól cola

19. nóv. 2007

Mánudagur

Ótrúlegt en satt, það er mánudagur.

Ég klárarið módulinn (kúrsinn) með glans á fimmtudaginn. Fengum rosa góða krítik og fólk var brosandi þegar við stigum af sviðinu. Ég tek þetta fram vegna þess að hinir fyrirlestrarnir voru frekar þurrir og svo var loftið þungt í stofunni (enda opna danir ekki glugga).

Nú svo er það menningin. Heima er massa góð mynd enda sáumst við Jói í myndinni (3x), skrýtið að okkar var ekki getið í takk-listanum.
Á laugardaginn enduðum við svo með því að fara á kaffihús og ílengjast þar, sem sagt Eivör var án okkar.
Í gær fórum við í mat til Nonna og Nadíu, þar sem Nonni fór á kostum í eldhúsinu við ritzbollugerð. Við bíðum annars spennt eftir að frumburðir þeirra komi í heiminn, en biðin verður eflaust ekki svo löng...

Í lokinn:
Hvaða lag er þetta og hvaða ár var það í undankeppninni á Íslandi, fyrir Eurovision?

Lífið yrði dans oooo
paradísar dans oooo

Án þess væri lífið litlaus tilvera...

14. nóv. 2007

Modul 2 að klárast

Ákváðum að slá öllu upp í kæruleysi í gær og skelltum okkur á bíó á Ten Canoes, krúttleg og áhugaverð, vorum lengi á eftir að velta fyrir okkur boðskap myndarinnar. Ég tel að boðskapurinn sé að maður eigi að vera þolinmóður, fínn boðskapur það.

Menningin er alveg að fara með okkur því á föstudagskvöldið ætlum við að sjá heimildarmyndina um Sigur rós og á laugardaginn ætluðum við svo á tónleika með Múgison en þeir falla niður og okkur er boðið upp á Eivöru Páls í staðinn. Pínu súrt, þetta er nú ekki alveg það sama, þannig að við erum svona að taka stöðuna, fá endurgreitt eða bara að skella sér. Við höfum hvorugt farið á tónleika með henni áður, svo afhverju ekki að fara... en samt...

Nú þrátt fyrir alla þessa menningarviðburði í lífi okkar er nú skólinn enn til staðar. Ég er að fara að klára Modul 2 á morgun. Pínu stress farið að gera vart við sig, ég á að fjalla um smá brot í verkefninu sem ég hef verið að gera síðustu vikur (þau ykkar sem fylgjast með vita um hvað ég er að tala:). Jebb stend fyrir framan bekkinn í tíu mín. og tala um sociale rum, sociale position, sociale hierarki, kropens sprog og að lokum sælgertyper. Stend eða fell með þessu !!!

Smá gáta að lokum:
Hver er sá veggur víður og hár,
allur settur röndum.
Gulur, rauður, græn og blár,
gerður af meistarans höndum.

10. nóv. 2007

Vikulokin

Jæja, góðan daginn.

Kaffið komið í bollann og komið að því að blogga.



Vikan sem er að líða er búin að vera frekar erfið hjá mér. Hópurinn minn átti að framleggja verkefnið í gærmorgun, sem við gerðum, en undirbúningurinn gekk ekki alveg þrautalaust fyrir sig. Hópurinn minn hefur einhverra hluta ekki fúnkerað nógu vel. Ég er búinn að blóta svo mikið síðustu daga(í hljóði að sjálfsögðu) að Siggi Hall hefði roðnað. (hér er ekki átt við matreiðslumanninn heldur afa minn heitinn)



Verkefnið er að hanna hús og staðsetja á lóð. Þetta er einbýlishús á tveimur hæðum staðsett í Utterslev Mose, grænu svæði hérna rétt hjá okkur Tinnu, svæði sem búið er að friða. Við eigum að teikna húsið nánast eingöngu í forriti sem heitir Revit og er tiltölulega nýtt, reyndar frá sama framleiðanda og Autocad en minna í sniðum og einfaldara. Vegna staðsetningar hússins eru gerðar ákveðnar kröfur um útlit þess. Þakið skal vera klætt með rauðum þakflísum og veggirnir hlaðnir úr "gulum" múrsteini. Svo eru alls konar aðrar kröfur um loftræstingu og annað skemmtilegt.



Í gær kynntum við svo verkefnið fyrir kennurunum og útskýrðum m.a. hvers vegna við höfðum ákveðið að velja hina eða þessa lausnina. Okkur gekk bara vel, gátum svarað spurningum kennaranna án þess að hiksta. Mér tókst að blaðra um fjórar mismunandi normalkonstrúktsjónir og knudepunkte án þess að svo mikið sem depla auga. Finn mikinn mun frá síðustu kynningu þar sem ég var vægast sagt mjög stressaður.

Næsta kynning er svo eftir fimm vikur, að mig minnir, og þá á verkefnið að vera tilbúið til að senda inn til umsóknar hjá byggingayfirvöldum með öllu sem því fylgir. Það verður eflaust mikið fjör.



Við Tinna erum að fara niður í Jónshús á eftir til að taka þátt í verkefni hjá honum Boga vini mínum. Þetta er einhvers konar stjórnunarverkefni fyrir kúrs sem hann er í og okkur bauðst að vera tilraunarottur, sem við þáðum með þökkum. Ekki á hverjum degi sem manni er boðið uppá Hæsí og kex fyrir að svara nokkrum laufléttum spurningum. Fínt að skreppa aðeins niður í bæ í sólinni og hafa það huggulegt. Svo kannski förum við að klifra á eftir. Hver veit? Það gæti þó farið svolítið eftir því hversu mikið magn við innbyrðum á tilraunastofunni.



...............ætlaði að segja eitthvað meira, held ég.......



....já, svarið við síðustu myndagetraun er að sjálfsögðu Haraldur Jónsson frá Brattavöllum. Haraldur þessi er næst-innsti koppur í búri Framsóknarflokksins í Dalvíkurbyggð. Þá er hann mikill áhugamaður um bindishnýtingar auk þess að vera stjórnarmaður í Brumm MC, mótorhjólaklúbbi hreppsins.



En........hvaða andlit eru kunugleg á þessari mynd:


7. nóv. 2007

Jólabarnið

Jæja nú er uppáhalds kvöldið hans Jóa yfirstaðið (þegar byrjað var að selja Jólaölið) og getur Jói Jólabarn farið að hlakka til Jólanna og drukkið smá Jólaöl á meðan hann bíður.

Annars er nú bara allt við það sama.

Ég að læra og Jói Jólabarn að bíða Jólanna.

Ég er orðin öllu fróðari um heimilislaust fólk og fólk sem selur gade avisen Hus forbi, en það er einmitt heimilislaust. Minn hópur hefur staðið fyrir utan Amager centret og gert athuganir á því hvernig aðferðir sölufólk Hus forbi notar til þess að selja blaðið. Nú svo hef ég verið að dunda mér við að tengja athuganir okkar við ýmis hugtök sem fræðimaðurinn mikli Pierre Bourdieu fjallar um. Við eigum svo að skila synopsis á föstudaginn og næsta fimmtudag eigum við svo að fjalla um allt heila klabbið, þá er þessi kúrs búinn.

Þar til næst

31. okt. 2007

J-dagurinn

Næstkomandi föstudag er svokallaður J-dagur hér. Þá munu danir tollera alla þá sem bera nafn sem byrjar á J........og gefa þeim bjór sem sérstaklega hefur verið bruggaður í tilefni þessa merka dags.

(J)óa hlakkar til. (T)inna er minna spennt.


Ég hef verið að dunda við að gera viðamikla mannfræðirannsókn hér á flatlendinu, n.k. hliðarverkefni við skólann. Niðurstöðurnar eru vægast sagt sláandi:


  • Spejder þýðir ekki könguló heldur skáti

  • Klatreklub merkir klifurklúbbur

  • Sprungið dekk er punkterað, svona eins og á Akureyri

  • Uppáhaldsstaðurinn hennar Tinnu er fyrir framan spegilinn

  • Uppáhaldsútvarpsþátturinn hennar er Spegillinn á rás1

  • Uppáhaldsrit hennar er Der Spiegel

  • Marsipan kaka er stundum kölluð Lort (kúkur)

  • Ef ég bauna á Tinnu þá svarar hún um hæl: "spegla það"

  • Arabar stama líka (Ostama bin Laden)

  • Sören Kirkegaard hvílir í kirkjugarði

Þess ber að geta að rannnsóknin stendur enn yfir.

Að lokum, hver er maðurinn?

28. okt. 2007

Tinna +

Tinna græddi heilan klukkutíma í nótt og getur því sofið lengur.


Annars gengur allt sinn vanagang hér.


10-4
Spurningin er: Hvar er þessi mynd tekin? (ekki nóg að segja Ísland)

20. okt. 2007

viskustykki

Deila smá með ykkur úr viskubrunni mínum.


Í IKEA hugsar maður ekki, bara framkvæmir.

18. okt. 2007

Smá yfirlit

Um síðustu helgi voru Sveinborg, Árný og Sara í Köpen og auðvitað var eitthvað kíkt í bæinn og í bjór. Virkilega gaman að fá þær svona í heimsókn, enda ég í fríi núna þessa vikuna. Ætlaði að vera ægilega duglega að læra til að vinna mér í haginn, það hefur nú ekki alveg gengið eftir en samt þó smá.

Ég er að fara að byrja á svona próf-verkefni í næstu viku, erum þrjár saman í hóp, gerum fyrst athugun og þurfum svo að vinna úr henni á fræðilegann hátt. Frekar spennandi þó svo þetta tengist ekki beint leikskóla ;). Munum sem sagt skoða interaction milli fólks sem selur Hus forbi og þeirra sem ganga framhjá. Þegar við klárum að vinna úr þessu og kynna þá er kúrsinn búinn og próf-ritgerð hefst í hinum kúrsinum. Það verður einstaklega fræðileg ritgerð, þarf að skoða eitthvað tiltekið atvik útfrá ákveðnum fræðimanni/mönnum, Focault, Weber, Durkheim eða einhverja aðra fræðikarla. Jebb hef bara lært um karla enn sem komið er.

Nú bráðum munum við svo líklegast breytast í spider-ofurfólk því við erum loksins byrjuð að klifra. Hinn fínasti klifurveggur í Norrebrohallen. Drifum bara í því að skrá okkur, kaupa skó og kalk, svo bara klifra og klifra og harðsperrur út um allt.

Med venlig hilsen

16. okt. 2007

Slikkerar

Sprengdi dekk á fjallahjólinu mínu á sunnudaginn. Fúlt! Fór með það til einhvers araba sem sérhæfir sig í svona löguðu. Hann var hress. Mátum stöðuna í bróðerni. 350 kall fyrir nýja slöngu og nýtt dekk. It´s a deal sagði ég. Hann varð enn hressari. Ég hugsaði með mér að þetta væri sennilega hressasti arabinn af þeim öllum. Fékk hann til að skrifa verðið á miðann, svona til öryggis. Á svolítið erfitt með að treysta fólki sem er of hresst.
Fór svo í morgun til að sækja fákinn. Ekki minnkaði hressleiki arabans þegar hann sá glitta í seðlana. Sem betur fer hafði mér tekist að fá hann til að skrifa niður verðið í gær því það fyrsta sem hann sagði við mig var að raunvirði nýja dekksins væri það hátt að ég hefði eiginlega átt að borga 450 kall en ekki 350.

Hvaða lærdóm má svo draga af þessu?

Jú, nebblega að reiðhjólavirkjar eru engu betri en bílasalar og að akureyringar nota danska slettu þegar þeir tala um sprungin dekk.

10-4

7. okt. 2007

Tinna og hjólið




Nennti ekki að bíða eftir að komast inn á þessa hjóla síðu, svo við bara drifum í myndatöku í dag ;)

6. okt. 2007

Lærdómur og táragas

Markverður dagur að kveldi kominn. Ég tók daginn snemma til að gera verkefni fyrir skólann, kláraði það fyrr en áætlað var svo við ákváðum að skella okkur í bæinn, kaffihús eða eitthvað.
Viti menn, þegar við vorum ekki nema rétt hálfnuð á leið okkar þá blasti við okkur mikil samkoma. Jebbs,ungdomshus fólk var að safna sér saman þar sem markaðurinn er alltaf á Nörrebrogade. Við ákváðum því að stoppa og fylgjast með, þegar gangan var loks farin framhjá, svona um 10.000 manns, þá gátum við adrenalínfíklarnir ekki annað en flotið með og fylgdum í humátt á eftir.
Frekar vel skipulögð ganga að okkar mati, það voru alltaf bílar svona inn á milli með tónlist sem hélt fólkinu saman og svo einhver sem kallaði til fólksins og stjórnaði. Bíllinn sem var síðastur var með svo ömurlega leiðinlega tónlist svo við flúðum framar í gönguna(kannski trix hjá skipuleggjendum), sem endaði svo á því að við vorum næstum fremst. Þegar hér var komið við sögu þá var gangan komin að húsinu sem þau ætluðu sér að taka yfir. Þá fór lögreglan að skjóta táragasi að fólkinu, einhverjar stimpingar hafa nú líklegast verið þarna fremst. Allavega, þá byrjaði gasið að svífa þarna um og við hreinlega flúðum með tár í augum og illt í nefinu. Enda klukkan orðin 4 og við orðin glorsoltin. Lögregluþyrlan sem var á sveimi þarna yfir er enn á sveimi, endalaust af ungdoms fólki á Nörrebrogade að hlusta á tónlist, fá sér að borða og drekka og þess háttar. Lögreglan brunar hér fram hjá glugganum sem aldrei fyrr. Þessu er semsagt ekki enn lokið og nóttin ung. Efast samt um að þau hafi náð húsinu... en veit ekki, forvitnilegt að athuga þetta á morgun og sjá ummerkin.
Verður húsið í höndum Ungdoms fólksins eða lögreglu...?

Nú höfum við sem sagt prufað að "taka þátt" í alvöru kröfugöngu, væri gaman að sjá íslendinga standa svona saman. Þau eru að berjast fyrir því að fá hús. Væri gaman að sjá náttúruverndarsinna mótmæla jafn kröftuglega. Mér finnst málstaðurinn nú vera mikilvægari.

3. okt. 2007

Stelpur í KPH á hjólum

Þetta er töff síða.

Ég stefni að því leynt og ljóst að verða ein af þessum skvísum, er komin með glamúr hjól og er skvís. Aðal málið er að vera á réttum stað á réttum tíma :-/

2. okt. 2007

Danskt kjaftædi

Jæja, hér sit ég og get ekki annad. Í skólanum ad hlusta á danina tala um allt og ekkert, adallega ekkert. Thad kom ad thví ad skrattinn hitti ømmu sína. Og núna situr hann bara og hlustar.

En madur kemst ad ýmsu í skólanum. Í sídustu viku vorum vid í landmælingakúrs hjá ansi skemmtilegum karli sem reykir pípu og spøger meget. Rétt í thann mund sem samnemendur mínir hófu geispingar miklar spyr hann hvort vid hefdum heyrt um Bjørnedyr. Enginn vildi kannast vid thad.

Bjørnedyr eru ca 2mm á lengd og thola eftirfarandi:

Temperatur: +151°C til -200°C
Radioaktivitet: 5700 gray
Tryk: 6000 atmosfærer
Udtørring: 120 år

Finnst ykkur ekki landmælingar magnadar?

Annars er allt fínt ad frétta af okkur. Frábært ad fá Egil í heimsókn, jú og audvitad múttu og Gudnýju.
Svo fengum vid fjórar dósir af grænum baunum (allir hvítir nema einn í bekknum mínum), hardfisk og lifrarpylsu. Ekki ónýtt!

Gott í dag

1. okt. 2007

Unglingaveiki

Hvernig er hægt að læra með geðveika unglinga í næstu íbúð?

Nú hafa rifrildi staðið yfir í svona klukkustund. Einn vælandi og gargandi, annar gargandi og gólandi og móðirin kemur stundum inní, stundum gargandi og stundum yfirveguð. (er ekki með á hreinu hversu mörg börn en held ein mamma)


Held ég fari og kaupi mér eyrnatappa.


Ótrúlegt lætin hættu á meðan ég skrifaði þessa færslu.

Núna er bara grafarþögn

30. sep. 2007

Smalinn


Yndisleg helgi er nú að baki og við aftur sest við tölvunar og bækurnar, normal vika hefst á morgun.

Egill kom í heimsókn yfir helgina í fylgd ömmu og ömmusystur sinnar. Þá var nú ekki hægt annað en að taka sér smá frí og sniglast eitthvað með litla manninum. Fórum í dýragarðinn og sáum næstum öll dýrin sem eru í Madagasgar, jú jú Martin, Alex og félagar. Held samt að aðal stemmningin hafi verið að fara í strætó (dingla) og í lest sem fer ofan í jörðina. Nú hefur hann loksins séð hvar hann á heima í Kaupmannahöfn ;)

23. sep. 2007

Myndir

Skreppitúr inn að jökli í blíðskaparveðri. Fólkið í lopapeysunum er utanað landi.





Magnús Hjartarson (59) heldur hér á Hildi Magnúsdóttur Eirúnardóttur (1), sem fannst nóg komið







Og þessi (4) er að koma í heimsókn í vikunni ásamt ömmu sinni (56)




21. sep. 2007

Rigning

Well, well aftur kominn föstudagur. Vikurnar ótrúlega fljótar að líða. Ég er að byrja á mínum öðrum analysispapir ó já já.
Kíktum til Boga í gær, sem er ekki frá sögu færandi nema bara hvað, við lentum í þessu líka brjálaða úrhelli á leiðinni heim, sko úrhelli eins og það gerist best alla leiðina og við að hjóla á skrilljón í dágóðan tíma. Komum heim eins og hundar nýkomnir af sundi.
Annars prentuðum við út úr múltígræjunni þessar fínu myndir af minni family síðan í Bnesi um páskana og af Agli, gaman að hafa eitthvað fallegt að horfa á. Svo krassaði þetta apparat, var ekki að höndla eitthvert glærusjó sem Jói var að prenta, dulítið súrt það. Þetta lagast vonandi fljótlega ;)

19. sep. 2007

Neyðarbíll

Flösuþeytari
Svuntuþeysari
Tætari
Drekkutími
Hífukrani
Stingubylur

Hvað þýða þessi orð?

Er flösuþeytari rafmagnstæki sem notað er á hárgreiðslustofum?
Er svuntuþeysari hraðskreiður heimilisfræðikennari?
En tætari?
Er drekkutími kannski það sem sumir kalla Happy Hour?
Hífukrani?
Veit einhver hvað stingubylur er?

Ef ég sit á klósettinu og fatta aðeins of seint að pappírinn er búinn, get ég þá hringt á Neyðarbílinn? Mun hann koma?

Jæja, best að slaka aðeins á í kaffinu.

17. sep. 2007

Kveðja til Benneweis

Búin að vera að læra um stúktúrisma í þrjá tíma, á slatta eftir :) Kíki svo við og við á orchideuna og dáist að því hvað hún blómstrar hjá mér, fjórða blómið að blómstra núna. Benneweis hefur sagt skilið við okkur um tíma, síðasta sýningin í gær og allir vagnar og hlið og dýr og trúðar farið. Hann eða einhver annar kemur svo víst að vori, held að þessi magnaði sirkúsvöllur sé auður á meðan, gaman að sjá ef eitthvað annað sprettur upp þar. Held annars að völlurinn sé æfingavöllur á meðan en þar þeysist maður einn um í hjólastól, held hann sé að stefna á rallí, hann skýst um völlinn, tekur 90 gráðu beyjur svo maður heldur hann ætli að velta en hann heldur ótrauður áfram.
Nú annars erum við komin með þessa mögnuðu múltígræju sem prentar, ljósritar og held eitthvað fleira og er nota bene hvít. Tækninni fleytir áfram o sei sei já

14. sep. 2007

Fjörfiskurinn & Slátrarinn

Síðastliðnar tvær vikur hef ég verið að hanna og skipuleggja lítið sumarhús ásamt fjórum dönskum fýrum. Verkefnið fólst í því að finna lóð, hann og teikna húsið, smíða módel í hlutföllunum 1:50, hengja allt saman uppá töflu (nema að sjálfsögðu módelið) og kynna fyrir kennurum og samnemendum. Samvinna hópsins gekk algerlega upp að mínu mati. Vorum mjög skipulagðir og tókum þetta föstum tökum.

Það eina sem hefði í raun getað klikkað var kynningin, eða öllu heldur minn hluti kynningarinnar. Ég hélt fyrirfram að ég myndi verða stressaður en varð það ekki, roðnaði ekki einu sinni. Hugsaði bara með mér: Fokk itt, I´ve past the point of no return! Tók smá kayaksálfræði á þetta (veit samt ekki við hvern FokkItt-kenningin er kennd).

Við vorum grúppa númer þrjú. Gekk eins og smurt. Ég notaði bara mína viðskiptadönsku og sýndist ég sjá einhverja ofurlitla kippi í öðru munnviki annars kennarans þegar ég var að blaðra en sannfærði sjálfan mig um að þetta væri fjörfiskur, jafnvel ættgengur.

Eftir sjálfa kynninguna fengum við allskyns spurningar um hitt og þetta varðandi húsið. Þá smellti ég upp gáfulega pókerfésinu og kinkaði kolli annað slagið, svona rétt til þess að sýnast vita eitthvað um þetta og vera með á nótunum (ég bið aldrei um nótu og er þ.a.l. aldrei með á þeim).
Í dag voru grúppurnar leystar upp og skipað í nýjar. Vonandi gengur það eins vel. Næsta verkefni mun hins vegar taka mun lengri tíma, svona á að giska það sem eftir er annar. Verður spennandi. Mér finnst nefnilega helvíti gaman í skólanum.

Annars er allt við það sama, Tinna les og les og hjólar og hjólar og ég hjóla og hjóla og hlusta og hlusta og drekk svo kaffi inná milli. Í gærmorgun á leiðinni í skólann sá ég hvar slátrari var að bera skrokka úr flutningabíl og inní búðina. Svo í gærkvöldi sá ég þátt um ameríska feitabollu sem hafði farið í magaminnkunaraðgerð en sat uppi með heilmikið af skinni. Í þættinum var sýnt hvernig það var fjarlægt. Tinnu fannst þetta óþægilegt að horfa á en mér varð hugsað til slátrarans.

Næst þegar okkur vantar hakk veit ég hvert ég á að leita.



Gott í bili

10. sep. 2007

Fólk, fræði og gott kaffi

Þessa helgi hafa Árný, Raggi og Iðunn, litla skottan þeirra, verið hér í köpen og haldi okkur selskap yfir helgina. Þau gistu annarsstaðar og svo hittumst við í brunch og kaffi og mat og svona. Alveg yndislegt að hitta þau og svo vonandi förum við svo að drífa okkur til Árhúsa þar sem þau ala manninn.
Námið hefur annars tekið völdin að miklu og nær öllu leyti hér á Hulgårdsvej. Jói er að gera hópverkefni í skólanum þar sem þau eiga að hanna og gera allt sem við kemur svona garðhúsum eins og eru hér um alla borg. Mér heyrist hann alveg vera að massa þennan skóla, dagarnir eru alltaf að lengjast hjá honum þar, enda á að skila þessu verkefni á fimmtudaginn. Meðan hann er í skólanum þá sit ég hér sveitt yfir fræðibókum um pædagogisk antropologi, það er alveg heljarins lestur fyrir þessa tíma. Mæti tvisvar í viku í skólan og á þá að vera búin að lesa 100 og eitthvað bls fyrir tíman og svo fara verkefnin að koma líka, svo það er annasi mikið að gera hjá minni núna. Lesefnið er svona mest á dönsku en smá á ensku, öllum verkefnum má ég skila á ensku. Einn kennarinn sagði við mig að henni væri alveg sama svo fremi sem ég skilaði ekki á íslensku (svolítið skrítið, hélt að allir væru með ísl sem sitt annað eða fyrsta tungumál).
Við höfum loksins fjárfest í gæða kaffi frá riccos, ég ætla að fara að gæða mér á því svona áður en ég byrja lesturinn.

Góðar stundir

6. sep. 2007

Apar og ljón

Las í einhverju blaði í dag að alkæda gaurarnir sem voru handteknir hér hafi ætlað sér að sprengja Nörreport lestarstöðina, ásamt mönnum og músum.

Hjúkk að ég tók hjólið með mér.

Tinna hefur tekið ástfóstri við ákveðinn kaupmann á ákveðnu horni hér skammt frá. Í sama húsi bjuggu meintir hryðjuverkamenn. Tilviljun?

Lét verða af því í dag að fá mér húðflúr, lítið og nett. Komst ekki inná heimabankann en fannst ég verða að gera eitthvað.

boof!

5. sep. 2007

Vefbækur

Vefbækur eru snilld. Veit ekki hvar ég væri ef þeirra nyti ekki við. Sé fram á mikinn lestur og skrif næstu árin, vona að ég fari að komast í gegnum lesefnið fyrir tímana á aðeins meiri hraða. Vefbók eddu margfaldar hraðan nú þegar.
Annars voru Gutti og Magga að fara voða hress með stútfulla ferðatösku, vonandi helst hún saman í fluginu. Hjördís var nú ansi sniðug og keypti sér bara tösku undir nýja dótið sitt áður en hún fór. Árný, Raggi og Iðunn munu vera í Köpen yfir helgina, vonast til að eyða einhverjum tíma með þeim. Kannski við plötum þau í sirkus, verðum náttúrulega að heilsa upp á nýju nágrannana.

4. sep. 2007

Hlutafélag

Þegar ég kom út í morgun sá ég hvar hin víðfrægi Benneweis sirkus var byrjaður að koma sér fyrir beint fyrir framan stofugluggann hjá okkur hér á Hulgardsvej 122. Ekki gat ég þó komið auga á hann Jörund sirkusumba. Sennilega í fríi karlinn. Eða ekki vaknaður.
Gutti bróðir og Magga eru hjá okkur þar til á morgun. Mjög gaman að hafa þau. Gutti er voðalega spenntur fyrir sirkusnum og er frá því í morgun búinn að standa út við glugga og fylgjast gaumgæfilega með uppsetningunni. Alltaf verið svo mikið sirkusbarn.
Þau skötuhjú skelltu sér í dýragarðinn í Frederiksberg í gær og fannst að eigin sögn voða gaman. Alltaf verið svo mikil dýragarðsbörn.

Að öðru.
Mikið er nú þægilegt að vera komin aðeins í fjarlægð frá ruglinu á Íslandi. Læt nægja að skoða mbl.is annað slagið og að hlusta á rúv.is. Ignorence is bliss.

30. ágú. 2007

Breaking news!

Lentum í svolitlu skemmtilegu áðan. Sáum dverg á stoppistöð. Tinna segir að ef maður sjái dverg þá megi maður eiga hann. Veit ekki. Fannst þessi ekkert krúttlegur. Nennti heldur ekki að snúa við.

Allt að gerast

Þvílíkar hamfarir hafa átt sér stað á Hulgaardsvej. Eitt stykki svefnsófi hefur ruðst hér inn. Einstaklega fallegur lítill IKEA sófi, ég vil meina að hann sé svona vonabí apaskins týpa, verst að við erum ekki með ferkantaða stellið þá væri smuga að taka alveg 80´ á þetta. Annars sómar hann sér vel hér í stofunni með finu púðunum og helkaða teppinu. Kubburinn góði er ekki enn kominn, veit ekki hvenær það gerist. Nóg af lýsingum á húsgögnum, nú er bara að fara að snurfusa, því von er á góðum gestum...

28. ágú. 2007

Brúin yfir Kwaifljótið


Fékk það verkefni í dag að byggja brú. Fagnaði að sjálfsögðu ógurlega þar sem brúarsmíði hefur alltaf heillað mig gífurlega. Téð brú skal vera 90cm löng, 12 cm breið og bera 3 kílóa "farg". Hóparnir fengu í hendur tvinna, teiknibólur, trélím og nokkur stykki örmjó rakettuprik. Dedlænið er kl.13:00 á morgun. Ég er rólegur enda ennþá á íslenskum tíma.
Jæja, best að horfa aðeins á Opruh.

27. ágú. 2007

Krukkudella

Eftir atburði dagsins datt mér þetta í hug:

Hún gerir svoddan lukku
eins og gaukur í krukku
IKEA féll að fótum hennar
um hálsinn fékk hún krans

Lifðu í lukku en ekki í krukku

Skóli, skóli, skóli, Kebab

Jebb nú er skólinn að byrja fyrir alvöru. Jói situr núna sinn fyrsta skóladag í skólanum og ég að fara að lesa áður en skólinn byrjar, á að vera búin með x margar blaðsíður áður en allt byrjar, gaman að því.
Við eigum svolítið erfitt með að vera í þessu straumlausa landi og ekki komast í neinar ár svo við skelltum okkur um helgina á ströndina við Amager og leigðum okkur sjókayaka. Það er nú ekki alveg það sama en ágætis æfing fyrir róður, svo glápum við bara á ýmis myndbönd á youtube.
Íbúðin er að verða hin príðilegasta, búin að kaupa potta og pönnu svo hægt er að elda hér mat. Kebabstaðirnir við Norrebrogade hafa annars átt hug okkar og settum við okkur það markmið að finna besta staðinn, sá sem er mestur að metum nú er Mendo Kebab, alveg glimmrandi búlla, pínu pínu lítil aðeins tveir barstólar til að sitja við þarna inni. Á eftir þeim stað kemur svo Flamingo, stíliserað merki fyrir utan staðinn og þrjú borð, sem er plús.
Sófakaup hafa eitthvað látið á sér standa en við ætlum að bæta úr því hið fyrsta, svo við getum nú boðið fólki að horfa á nýja hvíta bjútifúl sjónvarpið okkar