14. sep. 2008

Laung pása

Á morgun byrjar hin raunverulega önn hjá mér. Síðustu þrjár vikur var ég að vinna í verkefni sem tengist þeirri línu sem ég valdi í náminu, þ.e.a.s. arkitektúr. Við áttum að hanna svið fyrir Jazz-hátíðina sem haldin er hérna ár hvert. Áttum líka að staðsetja sviðið í miðborginni. Gekk ágætlega. En semsagt, á morgun byrjar fjörið fyrir alvöru.
Tinna er byrjuð á rannsókninni sinni á leikskóla hér í borg. Allt voðalega mikið leyndarmál. Svo mikið leyndarmál að að hún vill ekki einu sinni segja mér hvar leikskólinn er. Kannski er hún að vinna fyrir einhvers konar greiningardeild hjá danska ríkinu. Hver veit? Hún keypti sér allavega myndavél um daginn.
Skelltum okkur á ströndina í gær. Leigðum okkur sjókajaka og rérum í kringum eyjuna á Amager Strand. Ansi skemmtilegt og meira að segja gafst tækifæri til að sörfa aðeins innan um alla hina sem mættir voru til að notfæra sér vindinn; seglbrettafólk og drekabrettunga (mín þýðing á kitesurfer). Sáum samt ekki Flugdrekahlauparann.

Jæja, tími fyrir enn meira kaffi - læt fylgja með mynd af draumabílnum:-)



1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Biðjum að heilsa úr rokinu og rigningunni!

Gutti og Magga