Ég gersamlega límdist við bókina um flugdrekahlauparann í fyrra og fannst hún mjög góð en er pínu smeykur við að horfa á myndina. Held líka að hún bæti litlu við.
Ákvað hins vegar að horfa á Into The Wild. Sean Penn leikstýrir þessari mynd sem fjallar um ungan mann sem ákveður að gefa uppá bátinn hið veraldlega kapphlaup og lifa úti í óbyggðum. Okei, ég skal viðurkenna það að það er eitthvað rómantískt við hugmyndina en hann hefði mátt undirbúa sig mun betur. Hann var illa dressaður fyrir óbyggðirnar og greinilegt að hann hafði aldrei verið í skátunum. Svo fannst mér kajak atriðið sérlega slappt. Hann segist vera vatnshræddur en fer og kaupir sér kajak - treður í hann dótinu sínu og smellir sér af stað - eins og ekkert sé. Pönnsar(íslenska fyrir punch-mikið notað í kajakgeiranum) svo beint í ginið á stærðarinnar holum og haggast ekki. I´m just not buying it! Soldið svona eins og þegar söguhetjur í íslenskum myndum eiga að vera á leiðinni norður í land en eru svo bara að rúnta á Grindavíkurveginum. Mér finnast svona smáatriði skipta máli.
Egill var hjá okkur um síðustu helgi. Héldum smá afmælikaffi á laugardaginn með blöðrum og alles. Rosa gaman. Fékk hjól í afmælisgjöf - danska eðalsmíð frá Taarnby hjólafabrikkunni. Þegar maður er fimm ára þarf maður að eiga gott hjól. Það eru engin ný vísindi.
Frábært að fá Egil og múttu í heimsókn
Annars hafa páskarnir verið frekar rólegir hjá okkur. Fengum allra minnstu gerð af páskaeggjum til að hafa með kaffinu - látum það duga.
Skólinn byrjar á morgun af fullum krafti.
Jæja, tími á annan bolla.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli