16. jan. 2008

Henning renning

Til að loka á fleiri kaldhæðniskomment frá saumaklúbbnum hennar Tinnu þá kemur hér glóðvolg færsla.

Ég kom fljúgandi hingað til Kaupmannahafnar aftur þann 6. janúar. Flugið var ágætt. Ég gerði ítrekaðar tilraunir til að sofna en þær mistókust allar sem ein. Sat bara með lokuð augu og iPodinn í botni og pældi í því hvers vegna ég næði ekki að sofna. Notaði hina margrómuðu útilokunaraðferð og komst að þeirri niðurstöðu að andremma væri skýringin.Ekki mín eigin, heldur annaðhvort konunnar sem sat fyrir aftan mig eða konunnar sem sat við hlið mér. Grunur minn beindist þó frekar að þeirri fyrir aftan. Þó ég hafi enga læknisfræðilega menntun þá skýt ég á tannholdsbólgu eða vélindabakflæði.

Skólinn byrjaði svo daginn eftir. Ákveðið var að fækka um einn bekk hjá okkur og það var gamli bekkurinn minn sem var leystur upp. Við áttum að sjálf að sjá um að dreifa okkur í aðra bekki. Ég náði að sjanghæja sjálfan mig inní nýja grúppu sem flutti sig svo yfir í nýjan bekk. Þar er mjög skemmtilegur mórall og hlutirnir rúlla fínt. Erum núna í þriggja vikna verkefni þar sem eigum að taka fyrir mismunandi tímabil í arkitektasögunni, skrifa skýrslu og kynna svo með powerpointi og tilheyrandi. Minn hópur á að taka fyrir nútímann, þ.e.a.s. ca. frá 2000 og til dagsins í dag. Förum samt aðeins lengra aftur en til ársins 2000. Ætlum að fjalla almennt um það sem er að gerast í arkitektúr í dag og taka eina byggingu fyrir og nota sem dæmi. Byggingin sem við tökum fyrir hýsir IT-Universitetet og er teiknuð af Henning Larsen, þeim sama og teiknaði óperuna hérna og hið margrómaða tónlistarhús sem er að rísa í Reykjavík. Held að hann sé ekkert skyldur Henning sem rak hjólreiðaverkstæðið í Keflavík á sínum tíma. Það er þó ekki útilokað.









Litla myndavélin mín hefur komið að góðum notum við gagnaöflun. Ég er búinn að hjóla ansi hreint mikið undanfarna viku til að skoða og taka myndir. Mjög skemmtilegt, bæði að hjóla og taka myndir af flottum húsum. Eins hef ég hjólað í þrígang út á bókasafnið hjá arkitektaskólanum hérna til að fá lánaðar bækur og blöð. Aðeins 11 km löng leið. Ef iPodinn er með í för þá tek ég ekkert eftir því hvað þetta er langt. Gaman að virða fyrir sér húsin á leiðinni.


Læt fylgja með nokkrar myndir sem teknar voru um hátíðarnar.



Egill flottur með bindi og alles


Tinna með puttann á tískupúlsinum


Verið að reisa sér þak yfir höfuðið







































3 ummæli:

Ýrr sagði...

við erum enginn andskotans saumaklúbbur

Ýrr sagði...

...afhverju er ekki hægt að smella á myndirnar sem þú setur inn, og fá stærri útgáfu?

Johann Hjartarson sagði...

Þarf ég að fara að kenna þér á tölvu? Málarameistarinn? Að kenna tölvunarfræðingi hvernig á að skoða myndir á netinu?

Af hverju þarftu stærri mynd?

Tengist það næstu árshátíð saumaklúbbsins?

Fjallkonan í skíða-átfittinu?

Veistu Ýrr, ég hef bara ekki eina einustu hugmynd um af hverju þú færð ekki stærri mynd.

Getur prófað að gúggla.