30. ágú. 2007

Breaking news!

Lentum í svolitlu skemmtilegu áðan. Sáum dverg á stoppistöð. Tinna segir að ef maður sjái dverg þá megi maður eiga hann. Veit ekki. Fannst þessi ekkert krúttlegur. Nennti heldur ekki að snúa við.

Allt að gerast

Þvílíkar hamfarir hafa átt sér stað á Hulgaardsvej. Eitt stykki svefnsófi hefur ruðst hér inn. Einstaklega fallegur lítill IKEA sófi, ég vil meina að hann sé svona vonabí apaskins týpa, verst að við erum ekki með ferkantaða stellið þá væri smuga að taka alveg 80´ á þetta. Annars sómar hann sér vel hér í stofunni með finu púðunum og helkaða teppinu. Kubburinn góði er ekki enn kominn, veit ekki hvenær það gerist. Nóg af lýsingum á húsgögnum, nú er bara að fara að snurfusa, því von er á góðum gestum...

28. ágú. 2007

Brúin yfir Kwaifljótið


Fékk það verkefni í dag að byggja brú. Fagnaði að sjálfsögðu ógurlega þar sem brúarsmíði hefur alltaf heillað mig gífurlega. Téð brú skal vera 90cm löng, 12 cm breið og bera 3 kílóa "farg". Hóparnir fengu í hendur tvinna, teiknibólur, trélím og nokkur stykki örmjó rakettuprik. Dedlænið er kl.13:00 á morgun. Ég er rólegur enda ennþá á íslenskum tíma.
Jæja, best að horfa aðeins á Opruh.

27. ágú. 2007

Krukkudella

Eftir atburði dagsins datt mér þetta í hug:

Hún gerir svoddan lukku
eins og gaukur í krukku
IKEA féll að fótum hennar
um hálsinn fékk hún krans

Lifðu í lukku en ekki í krukku

Skóli, skóli, skóli, Kebab

Jebb nú er skólinn að byrja fyrir alvöru. Jói situr núna sinn fyrsta skóladag í skólanum og ég að fara að lesa áður en skólinn byrjar, á að vera búin með x margar blaðsíður áður en allt byrjar, gaman að því.
Við eigum svolítið erfitt með að vera í þessu straumlausa landi og ekki komast í neinar ár svo við skelltum okkur um helgina á ströndina við Amager og leigðum okkur sjókayaka. Það er nú ekki alveg það sama en ágætis æfing fyrir róður, svo glápum við bara á ýmis myndbönd á youtube.
Íbúðin er að verða hin príðilegasta, búin að kaupa potta og pönnu svo hægt er að elda hér mat. Kebabstaðirnir við Norrebrogade hafa annars átt hug okkar og settum við okkur það markmið að finna besta staðinn, sá sem er mestur að metum nú er Mendo Kebab, alveg glimmrandi búlla, pínu pínu lítil aðeins tveir barstólar til að sitja við þarna inni. Á eftir þeim stað kemur svo Flamingo, stíliserað merki fyrir utan staðinn og þrjú borð, sem er plús.
Sófakaup hafa eitthvað látið á sér standa en við ætlum að bæta úr því hið fyrsta, svo við getum nú boðið fólki að horfa á nýja hvíta bjútifúl sjónvarpið okkar