Jæja, mikið óskaplega er orðið langt síðan þessi síða hefur fengið athygli. Best að redda því.
Hér er allt eins og best verður á kosið. Egill Máni skaust hingað í helgarferð með ömmu sinni um liðna helgi. Við smelltum okkur í Eksperimentarium í Tuborg Havn, þar sem hægt er að gera alls kyns tilraunir og sjá hvernig hlutirnir virka. Mjög skemmtilegur staður.
Skólinn hjá okkur Tinnu gengur vel. Við ætlum að eyða jólunum hér í landi reiðhjólsins. Erum búin að hengja okkur á Kristínu Maríu og Pétur Orra. Hver eru þau, spyr fólk. Þau eru par sem býr í stærri íbúð en við og eiga þar að auki bæði MacBook tölvur. Hver vill ekki eyða aðfangadagskvöldi með slíku fólki.
Ég ætla svo að kíkja út á ísinn 14.janúar og vera þar í tvær vikur. Hlakka mikið til.
Næst á dagskrá eru það tónleikar með The Mars Volta á miðvikudaginn. Þá verður gefið gas!

