11. jan. 2014

Nýtt ár

Jæja, komið svolítið langt síðan hér var skrifað. Þá bjuggum við á Íslandi. Those were the days.

Kannski maður reyni að vera örlítið duglegri á lyklaborðinu. Brúka alltaf minni og minni tíma á facebook hvort sem er.

Hugsa að ég kryddi þetta með dassi af norsku og ensku. Sjáum til.

Hér er mynd frá síðasta sumri þegar Egill var hjá okkur. Fjaran klikkar aldrei.


11. mar. 2012

Sweet 2012

Vilji menn vera töff í ánni, kemur eiginlega bara ein tegund af hjálmum til greina; Sweet. Þeir fitta vel, eru þægilegir, sterkir og, síðast en ekki síst, töff.

Sjálfur á ég í augnablikinu tvo og langar í fleiri.

Strutterinn er töff fyrir leikbátinn og í raftið. Fáir raftgædar eins töff og þeir sem eiga svona.




Rocker er töff fyrir allt. Í raftið, leikbátinn, river-runnið og creekið. Fittar vel og er hlýr og þægilegur. Hentar líka sem skíða/brettahjálmur.




Wanderer er töff í allt heila klabbið. Samt finnst mér hann minnst töff af Sweet hjálmunum. Aðeins of mikill BMX fílingur fyrir kajakinn.




Fyrir ofurhugana er það svo Rocker Fullface. Þessi ætti að sjá til þess að stellið haldist á sínum stað. Guli liturinn kemur vel út.








27. feb. 2012

LOMO Renegade

Eftir að hafa skoðað og pælt heilmikið í þurrgöllum - ákvað ég að smella mér á galla sem heitir Renegade og er framleiddur af LOMO í Skotlandi. Merki sem ekki margir þekkja hér - en ég tók sénsinn - og sé ekki eftir því. Gallinn er bara fáanlegur í einni litasamsetningu - gult/svart. Hann er ekki Gore-Tex. Rennilásinn er þvert á bakinu og svo er pissulás að framan og tvöfalt lag þar sem svuntan fer undir. Háls- og úlnliðstúttur eru úr latexi - ásamt sokkunum.






22. feb. 2012

Five Ten Water Tennie

Jæja - orðið allt of langt síðan eitthvað gerðist hér.

Ég er alltaf að skoða nýtt dót - og ákvað að deila mínum pælingum hérna.

Í dag eru það skór frá FiveTen sem heita Water Tennie. Líta út fyrir að vera ekki of klossaðir - og ættu að komast fyrir í flestum bátum - fyrir utan kannski minnstu leikbátana. Þessi skór myndi passa fínt fyrir sjókajakróður - ekki síður en í strauminn.

Smá Old School fílingur.
Water Tennie


Mjög tæknilegt allt saman.