10. apr. 2008

Hverdagen



Lífið gengur sinn vanagang hér á Hulgårdsvej, nú er sólin farin að skína enn meir og dagurinn að lengjast. Magnað vorveður þessa dagana, ég vil meina að það stefni í gott sumar... alla vega þangað til við förum til íslands.


Ég er núna alveg á yfirsnúningi í skólanum, analysis pappírar, ritgerð og munnlegt próf. Í gær var svo verið að benda okkur á það að fara að huga að næstu önn og það yrði mikill lestur í sumar. Já já undirbúningur fyrir næstu önn að hefjast ofan í allt annað, fékk vægt sjokk en er farin að sjá skýrt aftur, þetta reddast. Frábært líka að hugsa til þess að eftir ár verð ég komin með mastersgráðu í uppeldis og mannfræði.


Fitnessdk hefur núna undan farna viku fengið að finna fyrir okkur Jóa, jú jú við erum byrjuð í ræktinni, legg ekki meira á ykkur. Síðustu helgi var afmælistilboð, fitnessdk 7 ára og því kostaði fyrsti mánuðurinn 7 krónur, skelltum okkur auðvitað á tilboðið. Sjáum svo hvað verður.

Ég hress að tala við pabba á skypinu.
Þar til næst

8. apr. 2008

Daglegt mál

Í rannsóknum mínum hef ég komist að því að Danir sletta á íslensku.





Frekar þó eldri kynslóðin.





Og þau eru ligeglad med det.



4. apr. 2008

Föstudagur til fróðleiks

Í gær stóð ég fyrir framan hóp af dönum og leiddi þá í gegnum töfra byggingarlistarinnar, á dönsku. Það gekk alveg glimrandi vel, allavega gaf svipurinn á þeim flestum til kynna að þeir skildu mig. Sem er gott.

Hef einmitt tekið eftir því hvernig dönskukunnáttan virðist vera þrepaskipt. Suma daga er eins og maður sitji fastur og allt kemur einhvern veginn öfugt út úr manni en svo aðra daga þá kjaftar á manni hver tuska - og allir virðast skilja blaðrið. Þannig hefur þessi vika verið. Sem er gott.

Vorið er komið. Sem er gott.

Þarf að komast á kajak.