30. sep. 2007

Smalinn


Yndisleg helgi er nú að baki og við aftur sest við tölvunar og bækurnar, normal vika hefst á morgun.

Egill kom í heimsókn yfir helgina í fylgd ömmu og ömmusystur sinnar. Þá var nú ekki hægt annað en að taka sér smá frí og sniglast eitthvað með litla manninum. Fórum í dýragarðinn og sáum næstum öll dýrin sem eru í Madagasgar, jú jú Martin, Alex og félagar. Held samt að aðal stemmningin hafi verið að fara í strætó (dingla) og í lest sem fer ofan í jörðina. Nú hefur hann loksins séð hvar hann á heima í Kaupmannahöfn ;)

23. sep. 2007

Myndir

Skreppitúr inn að jökli í blíðskaparveðri. Fólkið í lopapeysunum er utanað landi.





Magnús Hjartarson (59) heldur hér á Hildi Magnúsdóttur Eirúnardóttur (1), sem fannst nóg komið







Og þessi (4) er að koma í heimsókn í vikunni ásamt ömmu sinni (56)




21. sep. 2007

Rigning

Well, well aftur kominn föstudagur. Vikurnar ótrúlega fljótar að líða. Ég er að byrja á mínum öðrum analysispapir ó já já.
Kíktum til Boga í gær, sem er ekki frá sögu færandi nema bara hvað, við lentum í þessu líka brjálaða úrhelli á leiðinni heim, sko úrhelli eins og það gerist best alla leiðina og við að hjóla á skrilljón í dágóðan tíma. Komum heim eins og hundar nýkomnir af sundi.
Annars prentuðum við út úr múltígræjunni þessar fínu myndir af minni family síðan í Bnesi um páskana og af Agli, gaman að hafa eitthvað fallegt að horfa á. Svo krassaði þetta apparat, var ekki að höndla eitthvert glærusjó sem Jói var að prenta, dulítið súrt það. Þetta lagast vonandi fljótlega ;)

19. sep. 2007

Neyðarbíll

Flösuþeytari
Svuntuþeysari
Tætari
Drekkutími
Hífukrani
Stingubylur

Hvað þýða þessi orð?

Er flösuþeytari rafmagnstæki sem notað er á hárgreiðslustofum?
Er svuntuþeysari hraðskreiður heimilisfræðikennari?
En tætari?
Er drekkutími kannski það sem sumir kalla Happy Hour?
Hífukrani?
Veit einhver hvað stingubylur er?

Ef ég sit á klósettinu og fatta aðeins of seint að pappírinn er búinn, get ég þá hringt á Neyðarbílinn? Mun hann koma?

Jæja, best að slaka aðeins á í kaffinu.

17. sep. 2007

Kveðja til Benneweis

Búin að vera að læra um stúktúrisma í þrjá tíma, á slatta eftir :) Kíki svo við og við á orchideuna og dáist að því hvað hún blómstrar hjá mér, fjórða blómið að blómstra núna. Benneweis hefur sagt skilið við okkur um tíma, síðasta sýningin í gær og allir vagnar og hlið og dýr og trúðar farið. Hann eða einhver annar kemur svo víst að vori, held að þessi magnaði sirkúsvöllur sé auður á meðan, gaman að sjá ef eitthvað annað sprettur upp þar. Held annars að völlurinn sé æfingavöllur á meðan en þar þeysist maður einn um í hjólastól, held hann sé að stefna á rallí, hann skýst um völlinn, tekur 90 gráðu beyjur svo maður heldur hann ætli að velta en hann heldur ótrauður áfram.
Nú annars erum við komin með þessa mögnuðu múltígræju sem prentar, ljósritar og held eitthvað fleira og er nota bene hvít. Tækninni fleytir áfram o sei sei já

14. sep. 2007

Fjörfiskurinn & Slátrarinn

Síðastliðnar tvær vikur hef ég verið að hanna og skipuleggja lítið sumarhús ásamt fjórum dönskum fýrum. Verkefnið fólst í því að finna lóð, hann og teikna húsið, smíða módel í hlutföllunum 1:50, hengja allt saman uppá töflu (nema að sjálfsögðu módelið) og kynna fyrir kennurum og samnemendum. Samvinna hópsins gekk algerlega upp að mínu mati. Vorum mjög skipulagðir og tókum þetta föstum tökum.

Það eina sem hefði í raun getað klikkað var kynningin, eða öllu heldur minn hluti kynningarinnar. Ég hélt fyrirfram að ég myndi verða stressaður en varð það ekki, roðnaði ekki einu sinni. Hugsaði bara með mér: Fokk itt, I´ve past the point of no return! Tók smá kayaksálfræði á þetta (veit samt ekki við hvern FokkItt-kenningin er kennd).

Við vorum grúppa númer þrjú. Gekk eins og smurt. Ég notaði bara mína viðskiptadönsku og sýndist ég sjá einhverja ofurlitla kippi í öðru munnviki annars kennarans þegar ég var að blaðra en sannfærði sjálfan mig um að þetta væri fjörfiskur, jafnvel ættgengur.

Eftir sjálfa kynninguna fengum við allskyns spurningar um hitt og þetta varðandi húsið. Þá smellti ég upp gáfulega pókerfésinu og kinkaði kolli annað slagið, svona rétt til þess að sýnast vita eitthvað um þetta og vera með á nótunum (ég bið aldrei um nótu og er þ.a.l. aldrei með á þeim).
Í dag voru grúppurnar leystar upp og skipað í nýjar. Vonandi gengur það eins vel. Næsta verkefni mun hins vegar taka mun lengri tíma, svona á að giska það sem eftir er annar. Verður spennandi. Mér finnst nefnilega helvíti gaman í skólanum.

Annars er allt við það sama, Tinna les og les og hjólar og hjólar og ég hjóla og hjóla og hlusta og hlusta og drekk svo kaffi inná milli. Í gærmorgun á leiðinni í skólann sá ég hvar slátrari var að bera skrokka úr flutningabíl og inní búðina. Svo í gærkvöldi sá ég þátt um ameríska feitabollu sem hafði farið í magaminnkunaraðgerð en sat uppi með heilmikið af skinni. Í þættinum var sýnt hvernig það var fjarlægt. Tinnu fannst þetta óþægilegt að horfa á en mér varð hugsað til slátrarans.

Næst þegar okkur vantar hakk veit ég hvert ég á að leita.



Gott í bili

10. sep. 2007

Fólk, fræði og gott kaffi

Þessa helgi hafa Árný, Raggi og Iðunn, litla skottan þeirra, verið hér í köpen og haldi okkur selskap yfir helgina. Þau gistu annarsstaðar og svo hittumst við í brunch og kaffi og mat og svona. Alveg yndislegt að hitta þau og svo vonandi förum við svo að drífa okkur til Árhúsa þar sem þau ala manninn.
Námið hefur annars tekið völdin að miklu og nær öllu leyti hér á Hulgårdsvej. Jói er að gera hópverkefni í skólanum þar sem þau eiga að hanna og gera allt sem við kemur svona garðhúsum eins og eru hér um alla borg. Mér heyrist hann alveg vera að massa þennan skóla, dagarnir eru alltaf að lengjast hjá honum þar, enda á að skila þessu verkefni á fimmtudaginn. Meðan hann er í skólanum þá sit ég hér sveitt yfir fræðibókum um pædagogisk antropologi, það er alveg heljarins lestur fyrir þessa tíma. Mæti tvisvar í viku í skólan og á þá að vera búin að lesa 100 og eitthvað bls fyrir tíman og svo fara verkefnin að koma líka, svo það er annasi mikið að gera hjá minni núna. Lesefnið er svona mest á dönsku en smá á ensku, öllum verkefnum má ég skila á ensku. Einn kennarinn sagði við mig að henni væri alveg sama svo fremi sem ég skilaði ekki á íslensku (svolítið skrítið, hélt að allir væru með ísl sem sitt annað eða fyrsta tungumál).
Við höfum loksins fjárfest í gæða kaffi frá riccos, ég ætla að fara að gæða mér á því svona áður en ég byrja lesturinn.

Góðar stundir

6. sep. 2007

Apar og ljón

Las í einhverju blaði í dag að alkæda gaurarnir sem voru handteknir hér hafi ætlað sér að sprengja Nörreport lestarstöðina, ásamt mönnum og músum.

Hjúkk að ég tók hjólið með mér.

Tinna hefur tekið ástfóstri við ákveðinn kaupmann á ákveðnu horni hér skammt frá. Í sama húsi bjuggu meintir hryðjuverkamenn. Tilviljun?

Lét verða af því í dag að fá mér húðflúr, lítið og nett. Komst ekki inná heimabankann en fannst ég verða að gera eitthvað.

boof!

5. sep. 2007

Vefbækur

Vefbækur eru snilld. Veit ekki hvar ég væri ef þeirra nyti ekki við. Sé fram á mikinn lestur og skrif næstu árin, vona að ég fari að komast í gegnum lesefnið fyrir tímana á aðeins meiri hraða. Vefbók eddu margfaldar hraðan nú þegar.
Annars voru Gutti og Magga að fara voða hress með stútfulla ferðatösku, vonandi helst hún saman í fluginu. Hjördís var nú ansi sniðug og keypti sér bara tösku undir nýja dótið sitt áður en hún fór. Árný, Raggi og Iðunn munu vera í Köpen yfir helgina, vonast til að eyða einhverjum tíma með þeim. Kannski við plötum þau í sirkus, verðum náttúrulega að heilsa upp á nýju nágrannana.

4. sep. 2007

Hlutafélag

Þegar ég kom út í morgun sá ég hvar hin víðfrægi Benneweis sirkus var byrjaður að koma sér fyrir beint fyrir framan stofugluggann hjá okkur hér á Hulgardsvej 122. Ekki gat ég þó komið auga á hann Jörund sirkusumba. Sennilega í fríi karlinn. Eða ekki vaknaður.
Gutti bróðir og Magga eru hjá okkur þar til á morgun. Mjög gaman að hafa þau. Gutti er voðalega spenntur fyrir sirkusnum og er frá því í morgun búinn að standa út við glugga og fylgjast gaumgæfilega með uppsetningunni. Alltaf verið svo mikið sirkusbarn.
Þau skötuhjú skelltu sér í dýragarðinn í Frederiksberg í gær og fannst að eigin sögn voða gaman. Alltaf verið svo mikil dýragarðsbörn.

Að öðru.
Mikið er nú þægilegt að vera komin aðeins í fjarlægð frá ruglinu á Íslandi. Læt nægja að skoða mbl.is annað slagið og að hlusta á rúv.is. Ignorence is bliss.