31. okt. 2007

J-dagurinn

Næstkomandi föstudag er svokallaður J-dagur hér. Þá munu danir tollera alla þá sem bera nafn sem byrjar á J........og gefa þeim bjór sem sérstaklega hefur verið bruggaður í tilefni þessa merka dags.

(J)óa hlakkar til. (T)inna er minna spennt.


Ég hef verið að dunda við að gera viðamikla mannfræðirannsókn hér á flatlendinu, n.k. hliðarverkefni við skólann. Niðurstöðurnar eru vægast sagt sláandi:


  • Spejder þýðir ekki könguló heldur skáti

  • Klatreklub merkir klifurklúbbur

  • Sprungið dekk er punkterað, svona eins og á Akureyri

  • Uppáhaldsstaðurinn hennar Tinnu er fyrir framan spegilinn

  • Uppáhaldsútvarpsþátturinn hennar er Spegillinn á rás1

  • Uppáhaldsrit hennar er Der Spiegel

  • Marsipan kaka er stundum kölluð Lort (kúkur)

  • Ef ég bauna á Tinnu þá svarar hún um hæl: "spegla það"

  • Arabar stama líka (Ostama bin Laden)

  • Sören Kirkegaard hvílir í kirkjugarði

Þess ber að geta að rannnsóknin stendur enn yfir.

Að lokum, hver er maðurinn?

28. okt. 2007

Tinna +

Tinna græddi heilan klukkutíma í nótt og getur því sofið lengur.


Annars gengur allt sinn vanagang hér.


10-4
Spurningin er: Hvar er þessi mynd tekin? (ekki nóg að segja Ísland)

20. okt. 2007

viskustykki

Deila smá með ykkur úr viskubrunni mínum.


Í IKEA hugsar maður ekki, bara framkvæmir.

18. okt. 2007

Smá yfirlit

Um síðustu helgi voru Sveinborg, Árný og Sara í Köpen og auðvitað var eitthvað kíkt í bæinn og í bjór. Virkilega gaman að fá þær svona í heimsókn, enda ég í fríi núna þessa vikuna. Ætlaði að vera ægilega duglega að læra til að vinna mér í haginn, það hefur nú ekki alveg gengið eftir en samt þó smá.

Ég er að fara að byrja á svona próf-verkefni í næstu viku, erum þrjár saman í hóp, gerum fyrst athugun og þurfum svo að vinna úr henni á fræðilegann hátt. Frekar spennandi þó svo þetta tengist ekki beint leikskóla ;). Munum sem sagt skoða interaction milli fólks sem selur Hus forbi og þeirra sem ganga framhjá. Þegar við klárum að vinna úr þessu og kynna þá er kúrsinn búinn og próf-ritgerð hefst í hinum kúrsinum. Það verður einstaklega fræðileg ritgerð, þarf að skoða eitthvað tiltekið atvik útfrá ákveðnum fræðimanni/mönnum, Focault, Weber, Durkheim eða einhverja aðra fræðikarla. Jebb hef bara lært um karla enn sem komið er.

Nú bráðum munum við svo líklegast breytast í spider-ofurfólk því við erum loksins byrjuð að klifra. Hinn fínasti klifurveggur í Norrebrohallen. Drifum bara í því að skrá okkur, kaupa skó og kalk, svo bara klifra og klifra og harðsperrur út um allt.

Med venlig hilsen

16. okt. 2007

Slikkerar

Sprengdi dekk á fjallahjólinu mínu á sunnudaginn. Fúlt! Fór með það til einhvers araba sem sérhæfir sig í svona löguðu. Hann var hress. Mátum stöðuna í bróðerni. 350 kall fyrir nýja slöngu og nýtt dekk. It´s a deal sagði ég. Hann varð enn hressari. Ég hugsaði með mér að þetta væri sennilega hressasti arabinn af þeim öllum. Fékk hann til að skrifa verðið á miðann, svona til öryggis. Á svolítið erfitt með að treysta fólki sem er of hresst.
Fór svo í morgun til að sækja fákinn. Ekki minnkaði hressleiki arabans þegar hann sá glitta í seðlana. Sem betur fer hafði mér tekist að fá hann til að skrifa niður verðið í gær því það fyrsta sem hann sagði við mig var að raunvirði nýja dekksins væri það hátt að ég hefði eiginlega átt að borga 450 kall en ekki 350.

Hvaða lærdóm má svo draga af þessu?

Jú, nebblega að reiðhjólavirkjar eru engu betri en bílasalar og að akureyringar nota danska slettu þegar þeir tala um sprungin dekk.

10-4

7. okt. 2007

Tinna og hjólið




Nennti ekki að bíða eftir að komast inn á þessa hjóla síðu, svo við bara drifum í myndatöku í dag ;)

6. okt. 2007

Lærdómur og táragas

Markverður dagur að kveldi kominn. Ég tók daginn snemma til að gera verkefni fyrir skólann, kláraði það fyrr en áætlað var svo við ákváðum að skella okkur í bæinn, kaffihús eða eitthvað.
Viti menn, þegar við vorum ekki nema rétt hálfnuð á leið okkar þá blasti við okkur mikil samkoma. Jebbs,ungdomshus fólk var að safna sér saman þar sem markaðurinn er alltaf á Nörrebrogade. Við ákváðum því að stoppa og fylgjast með, þegar gangan var loks farin framhjá, svona um 10.000 manns, þá gátum við adrenalínfíklarnir ekki annað en flotið með og fylgdum í humátt á eftir.
Frekar vel skipulögð ganga að okkar mati, það voru alltaf bílar svona inn á milli með tónlist sem hélt fólkinu saman og svo einhver sem kallaði til fólksins og stjórnaði. Bíllinn sem var síðastur var með svo ömurlega leiðinlega tónlist svo við flúðum framar í gönguna(kannski trix hjá skipuleggjendum), sem endaði svo á því að við vorum næstum fremst. Þegar hér var komið við sögu þá var gangan komin að húsinu sem þau ætluðu sér að taka yfir. Þá fór lögreglan að skjóta táragasi að fólkinu, einhverjar stimpingar hafa nú líklegast verið þarna fremst. Allavega, þá byrjaði gasið að svífa þarna um og við hreinlega flúðum með tár í augum og illt í nefinu. Enda klukkan orðin 4 og við orðin glorsoltin. Lögregluþyrlan sem var á sveimi þarna yfir er enn á sveimi, endalaust af ungdoms fólki á Nörrebrogade að hlusta á tónlist, fá sér að borða og drekka og þess háttar. Lögreglan brunar hér fram hjá glugganum sem aldrei fyrr. Þessu er semsagt ekki enn lokið og nóttin ung. Efast samt um að þau hafi náð húsinu... en veit ekki, forvitnilegt að athuga þetta á morgun og sjá ummerkin.
Verður húsið í höndum Ungdoms fólksins eða lögreglu...?

Nú höfum við sem sagt prufað að "taka þátt" í alvöru kröfugöngu, væri gaman að sjá íslendinga standa svona saman. Þau eru að berjast fyrir því að fá hús. Væri gaman að sjá náttúruverndarsinna mótmæla jafn kröftuglega. Mér finnst málstaðurinn nú vera mikilvægari.

3. okt. 2007

Stelpur í KPH á hjólum

Þetta er töff síða.

Ég stefni að því leynt og ljóst að verða ein af þessum skvísum, er komin með glamúr hjól og er skvís. Aðal málið er að vera á réttum stað á réttum tíma :-/

2. okt. 2007

Danskt kjaftædi

Jæja, hér sit ég og get ekki annad. Í skólanum ad hlusta á danina tala um allt og ekkert, adallega ekkert. Thad kom ad thví ad skrattinn hitti ømmu sína. Og núna situr hann bara og hlustar.

En madur kemst ad ýmsu í skólanum. Í sídustu viku vorum vid í landmælingakúrs hjá ansi skemmtilegum karli sem reykir pípu og spøger meget. Rétt í thann mund sem samnemendur mínir hófu geispingar miklar spyr hann hvort vid hefdum heyrt um Bjørnedyr. Enginn vildi kannast vid thad.

Bjørnedyr eru ca 2mm á lengd og thola eftirfarandi:

Temperatur: +151°C til -200°C
Radioaktivitet: 5700 gray
Tryk: 6000 atmosfærer
Udtørring: 120 år

Finnst ykkur ekki landmælingar magnadar?

Annars er allt fínt ad frétta af okkur. Frábært ad fá Egil í heimsókn, jú og audvitad múttu og Gudnýju.
Svo fengum vid fjórar dósir af grænum baunum (allir hvítir nema einn í bekknum mínum), hardfisk og lifrarpylsu. Ekki ónýtt!

Gott í dag

1. okt. 2007

Unglingaveiki

Hvernig er hægt að læra með geðveika unglinga í næstu íbúð?

Nú hafa rifrildi staðið yfir í svona klukkustund. Einn vælandi og gargandi, annar gargandi og gólandi og móðirin kemur stundum inní, stundum gargandi og stundum yfirveguð. (er ekki með á hreinu hversu mörg börn en held ein mamma)


Held ég fari og kaupi mér eyrnatappa.


Ótrúlegt lætin hættu á meðan ég skrifaði þessa færslu.

Núna er bara grafarþögn