28. nóv. 2007

Stereo Total - holiday innn

Meðan Jói er sniðugur

skrifa ég bara blogg sem byrja á M, ótrúleg uppgötvun.

Fórum á brillíant tónleika STEREO TOTAL á sunnudaginn í Christianiu. Fjárfestum í 2 CDum og nú rúlla þeir bara, hressleikinn í fyrirrúmi.

Holliday Innn

eitt af mínum uppáhalds

love it.

26. nóv. 2007

Sniðugheit

Jæja, ég ætla að halda áfram að vera sniðugur. Ef marka má síðustu færslu þá fær fólk bara aldrei nóg af svona sniðugheitum, og þá sérstaklega í jólastressinu. Einmitt þegar myrkrið umlykur allt og kuldaboli bítur í kinnarnar er svo gott að geta hlegið.
Vitið til, það birtir um síðir.

24. nóv. 2007

Gaukur í krukku

Þessi er hress:





Sá um daginn páfagauk sem hjólað hafði verið yfir.


Tjah......nema þetta hafi verið Harakiri-gaukur!





Hér er svo enn meiri hressleiki:


Gasalega hress náungi!
Tinna er líka hress!
Og ég!
Veriði hress!
Bless!!

22. nóv. 2007

Montblogg

Hópurinn minn var að fá út úr kúrisinum og við vorum yfir meðallag (miðað útfrá öllum hópunum), sem þýðir að við vorum með þeim betri. Það eru engar einkunnir í þessum kúrs, bara staðið eða fallið.

Engar meðalmanneskjur jibbí kóla... eða sól cola

19. nóv. 2007

Mánudagur

Ótrúlegt en satt, það er mánudagur.

Ég klárarið módulinn (kúrsinn) með glans á fimmtudaginn. Fengum rosa góða krítik og fólk var brosandi þegar við stigum af sviðinu. Ég tek þetta fram vegna þess að hinir fyrirlestrarnir voru frekar þurrir og svo var loftið þungt í stofunni (enda opna danir ekki glugga).

Nú svo er það menningin. Heima er massa góð mynd enda sáumst við Jói í myndinni (3x), skrýtið að okkar var ekki getið í takk-listanum.
Á laugardaginn enduðum við svo með því að fara á kaffihús og ílengjast þar, sem sagt Eivör var án okkar.
Í gær fórum við í mat til Nonna og Nadíu, þar sem Nonni fór á kostum í eldhúsinu við ritzbollugerð. Við bíðum annars spennt eftir að frumburðir þeirra komi í heiminn, en biðin verður eflaust ekki svo löng...

Í lokinn:
Hvaða lag er þetta og hvaða ár var það í undankeppninni á Íslandi, fyrir Eurovision?

Lífið yrði dans oooo
paradísar dans oooo

Án þess væri lífið litlaus tilvera...

14. nóv. 2007

Modul 2 að klárast

Ákváðum að slá öllu upp í kæruleysi í gær og skelltum okkur á bíó á Ten Canoes, krúttleg og áhugaverð, vorum lengi á eftir að velta fyrir okkur boðskap myndarinnar. Ég tel að boðskapurinn sé að maður eigi að vera þolinmóður, fínn boðskapur það.

Menningin er alveg að fara með okkur því á föstudagskvöldið ætlum við að sjá heimildarmyndina um Sigur rós og á laugardaginn ætluðum við svo á tónleika með Múgison en þeir falla niður og okkur er boðið upp á Eivöru Páls í staðinn. Pínu súrt, þetta er nú ekki alveg það sama, þannig að við erum svona að taka stöðuna, fá endurgreitt eða bara að skella sér. Við höfum hvorugt farið á tónleika með henni áður, svo afhverju ekki að fara... en samt...

Nú þrátt fyrir alla þessa menningarviðburði í lífi okkar er nú skólinn enn til staðar. Ég er að fara að klára Modul 2 á morgun. Pínu stress farið að gera vart við sig, ég á að fjalla um smá brot í verkefninu sem ég hef verið að gera síðustu vikur (þau ykkar sem fylgjast með vita um hvað ég er að tala:). Jebb stend fyrir framan bekkinn í tíu mín. og tala um sociale rum, sociale position, sociale hierarki, kropens sprog og að lokum sælgertyper. Stend eða fell með þessu !!!

Smá gáta að lokum:
Hver er sá veggur víður og hár,
allur settur röndum.
Gulur, rauður, græn og blár,
gerður af meistarans höndum.

10. nóv. 2007

Vikulokin

Jæja, góðan daginn.

Kaffið komið í bollann og komið að því að blogga.



Vikan sem er að líða er búin að vera frekar erfið hjá mér. Hópurinn minn átti að framleggja verkefnið í gærmorgun, sem við gerðum, en undirbúningurinn gekk ekki alveg þrautalaust fyrir sig. Hópurinn minn hefur einhverra hluta ekki fúnkerað nógu vel. Ég er búinn að blóta svo mikið síðustu daga(í hljóði að sjálfsögðu) að Siggi Hall hefði roðnað. (hér er ekki átt við matreiðslumanninn heldur afa minn heitinn)



Verkefnið er að hanna hús og staðsetja á lóð. Þetta er einbýlishús á tveimur hæðum staðsett í Utterslev Mose, grænu svæði hérna rétt hjá okkur Tinnu, svæði sem búið er að friða. Við eigum að teikna húsið nánast eingöngu í forriti sem heitir Revit og er tiltölulega nýtt, reyndar frá sama framleiðanda og Autocad en minna í sniðum og einfaldara. Vegna staðsetningar hússins eru gerðar ákveðnar kröfur um útlit þess. Þakið skal vera klætt með rauðum þakflísum og veggirnir hlaðnir úr "gulum" múrsteini. Svo eru alls konar aðrar kröfur um loftræstingu og annað skemmtilegt.



Í gær kynntum við svo verkefnið fyrir kennurunum og útskýrðum m.a. hvers vegna við höfðum ákveðið að velja hina eða þessa lausnina. Okkur gekk bara vel, gátum svarað spurningum kennaranna án þess að hiksta. Mér tókst að blaðra um fjórar mismunandi normalkonstrúktsjónir og knudepunkte án þess að svo mikið sem depla auga. Finn mikinn mun frá síðustu kynningu þar sem ég var vægast sagt mjög stressaður.

Næsta kynning er svo eftir fimm vikur, að mig minnir, og þá á verkefnið að vera tilbúið til að senda inn til umsóknar hjá byggingayfirvöldum með öllu sem því fylgir. Það verður eflaust mikið fjör.



Við Tinna erum að fara niður í Jónshús á eftir til að taka þátt í verkefni hjá honum Boga vini mínum. Þetta er einhvers konar stjórnunarverkefni fyrir kúrs sem hann er í og okkur bauðst að vera tilraunarottur, sem við þáðum með þökkum. Ekki á hverjum degi sem manni er boðið uppá Hæsí og kex fyrir að svara nokkrum laufléttum spurningum. Fínt að skreppa aðeins niður í bæ í sólinni og hafa það huggulegt. Svo kannski förum við að klifra á eftir. Hver veit? Það gæti þó farið svolítið eftir því hversu mikið magn við innbyrðum á tilraunastofunni.



...............ætlaði að segja eitthvað meira, held ég.......



....já, svarið við síðustu myndagetraun er að sjálfsögðu Haraldur Jónsson frá Brattavöllum. Haraldur þessi er næst-innsti koppur í búri Framsóknarflokksins í Dalvíkurbyggð. Þá er hann mikill áhugamaður um bindishnýtingar auk þess að vera stjórnarmaður í Brumm MC, mótorhjólaklúbbi hreppsins.



En........hvaða andlit eru kunugleg á þessari mynd:


7. nóv. 2007

Jólabarnið

Jæja nú er uppáhalds kvöldið hans Jóa yfirstaðið (þegar byrjað var að selja Jólaölið) og getur Jói Jólabarn farið að hlakka til Jólanna og drukkið smá Jólaöl á meðan hann bíður.

Annars er nú bara allt við það sama.

Ég að læra og Jói Jólabarn að bíða Jólanna.

Ég er orðin öllu fróðari um heimilislaust fólk og fólk sem selur gade avisen Hus forbi, en það er einmitt heimilislaust. Minn hópur hefur staðið fyrir utan Amager centret og gert athuganir á því hvernig aðferðir sölufólk Hus forbi notar til þess að selja blaðið. Nú svo hef ég verið að dunda mér við að tengja athuganir okkar við ýmis hugtök sem fræðimaðurinn mikli Pierre Bourdieu fjallar um. Við eigum svo að skila synopsis á föstudaginn og næsta fimmtudag eigum við svo að fjalla um allt heila klabbið, þá er þessi kúrs búinn.

Þar til næst