Það helsta sem hefur gerst hér á Hulgårdsvej er að litli prinsinn kom í heimsókn yfir helgina með ömmu sinni. Þau komu á fimmtudagskveldinu og strax morguninn eftir var honum færð afmælisgjöfin, hjól. Eins og við var að búast varð hann ekki lítið glaður með gripinn og vildi strax fara út að hjóla. Hjólatúrarnir voru því ófáir um helgina og heimsóknir á leikvöllinn sömuleiðis. Hjólið er sko með bjöllu og böglabera sem var nýttur óspart. Egill er náttlega aðal-greinasafnarinn og böglaberinn yfirleitt með nokkrum greinum danglandi útí loftið, öðru hjólafólki til ómældrar ánægju. Á laugardeginum héldum við smá afmælisveislu en á sunnudeginum var fákurinn þveginn vel og vandlega komið fyrir í pappakössum fyrir flugið. Þá um kvöldið lögðu þau aftur af stað til íslands eftir ótrúlega notalega helgi.
Í gær var bara alíslenskt veður, rok og snjókoma, ótrúlegt en satt þá eru enn smá leifar af snjónum hér á götunum. Annars mun lærdómurinn örugglega taka yfir þessa páskana...
Þar til næst
Engin ummæli:
Skrifa ummæli