21. okt. 2008

Jæja...

Nenni ekki ad skrifa um kreppu. Ætla frekar ad benda á schnilldarband frá Texas. Heita Explosions In The Sky. Gedveikt ad hjóla med thessa músík í eyrunum.

http://www.youtube.com/watch?v=pP09piedtAk

Thetta er fyrsta lag af plötunni All Of A Sudden I Miss Everyone, sem er bara schnilld.

Getur einhver bent mér á hvernig ég get sett vídjóid beint hér inn, en ekki bara linkinn. Merkilegt nokk thá kann ég thad ekki.

10. okt. 2008

Grínlestin brunar!

Laglega komið fyrir okkur núna.

Smella á þennan ótrúlega langa hlekk fyrir neðan.

http://cgi.ebay.co.uk/Country-for-sale-ICELAND-99p-start-price-no-reserve_W0QQitemZ320308801162QQcmdZViewItem?hash=item320308801162&_trkparms=72%3A1301|39%3A1|66%3A2|65%3A12|240%3A1318&_trksid=p3286.c0.m14

Spurning um að taka þetta bara á raðgreiðslum.

Meira ruglið allt saman.

6. okt. 2008

Ef ég væri ríkur...

Þá er það víst alveg morgunljóst að tilraun mín til að hagnast á hlutabréfum hefur með öllu mistekist.

Ætli Sparisjóðurinn sé til í að senda mér Stofnfjárbréfin mín í pósti? Get í það minnsta notað þau til að skeina á mér rassinn.

En við Tinna erum ekki af baki dottin. Fengum okkur heilan líter af Dumle ís, sem kláraðist á meðan við hlustuðum andaktug á Geira Smart flytja andvarp. Á eftir ætla ég svo að fá mér ostapopp.

Borða til að gleyma.

Á morgun kemur nýr dagur og þá ætla ég í ræktina.





4. okt. 2008

......og kreppa.........og slaka

Orðið kreppa minnir mig á morgunleikfimina á Gufunni. Og þar eð landlæknir hefur beðið fólk um að tala varlega til að auka ekki á kvíða landans þá velti ég fyrir mér hvort einhver hafi veitt "morgunleikfimikennurum" Ríkisútvarpsins tiltal.

........og kremja.........og slaka

eða

.......og herpa.........og slaka

Einhverjar tillögur?


Annars fórum við Tinna í smá leikfimitúr til Svíþjóðar um síðustu helgi. Áfangastaðurinn var Mörrum á Skáni og ekki skánaði kajak-bakterían við það.