Yndisleg helgi er nú að baki og við aftur sest við tölvunar og bækurnar, normal vika hefst á morgun.
Egill kom í heimsókn yfir helgina í fylgd ömmu og ömmusystur sinnar. Þá var nú ekki hægt annað en að taka sér smá frí og sniglast eitthvað með litla manninum. Fórum í dýragarðinn og sáum næstum öll dýrin sem eru í Madagasgar, jú jú Martin, Alex og félagar. Held samt að aðal stemmningin hafi verið að fara í strætó (dingla) og í lest sem fer ofan í jörðina. Nú hefur hann loksins séð hvar hann á heima í Kaupmannahöfn ;)
4 ummæli:
Sá er kampakátur og reyndar þeir báðir þ.e. björnin og Egill. Skilaði Magnús sér ekki líka til Köben um helgina?
Kærar kveðjur frá grasekkjunni á Langh.
Gaman að heyra.
Það er búið að rigna meira heldur en eðlilegt getur talist í þessari veðurparadís sem Keflavík er.
Verið nú dugleg að læra svo maður þurfi ekki að skammast sín fyrir að þekkja ykkur!
Kv. Gutti og Magga.
Jú það var nú æðislegt að hitta Magga, fórum á þennan líka grand Thai stað og áttum ánægulega stund öll þrjú, væri gaman að heyra hvernig restinn af ferðinni var hjá honum.
Læra smæra
Skrifa ummæli