21. sep. 2007

Rigning

Well, well aftur kominn föstudagur. Vikurnar ótrúlega fljótar að líða. Ég er að byrja á mínum öðrum analysispapir ó já já.
Kíktum til Boga í gær, sem er ekki frá sögu færandi nema bara hvað, við lentum í þessu líka brjálaða úrhelli á leiðinni heim, sko úrhelli eins og það gerist best alla leiðina og við að hjóla á skrilljón í dágóðan tíma. Komum heim eins og hundar nýkomnir af sundi.
Annars prentuðum við út úr múltígræjunni þessar fínu myndir af minni family síðan í Bnesi um páskana og af Agli, gaman að hafa eitthvað fallegt að horfa á. Svo krassaði þetta apparat, var ekki að höndla eitthvert glærusjó sem Jói var að prenta, dulítið súrt það. Þetta lagast vonandi fljótlega ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...



Verða þessar myndir ekki settar á bloggsíðuna?
Gangi þér vel við verkefnin og varaðu þig á rigningunni. M.H. er orðin mjög spenntur að sjá ykkur.

Kossar og knús mamma

Berglind Rós Magnúsdóttir sagði...

Betra að hjóla í rigningu en rokrassgatinu og hitaleysinu hér.

Tinna sagði...

Aldrei að vita nema þessi bjútí fjölskylda fari á alnetið ;)
Hlökkum líka mikið til að hitta hann.
Já eins gott það fylgdi ekkert hávaða rok með þessari dembu.