Jebb nú er skólinn að byrja fyrir alvöru. Jói situr núna sinn fyrsta skóladag í skólanum og ég að fara að lesa áður en skólinn byrjar, á að vera búin með x margar blaðsíður áður en allt byrjar, gaman að því.
Við eigum svolítið erfitt með að vera í þessu straumlausa landi og ekki komast í neinar ár svo við skelltum okkur um helgina á ströndina við Amager og leigðum okkur sjókayaka. Það er nú ekki alveg það sama en ágætis æfing fyrir róður, svo glápum við bara á ýmis myndbönd á youtube.
Íbúðin er að verða hin príðilegasta, búin að kaupa potta og pönnu svo hægt er að elda hér mat. Kebabstaðirnir við Norrebrogade hafa annars átt hug okkar og settum við okkur það markmið að finna besta staðinn, sá sem er mestur að metum nú er Mendo Kebab, alveg glimmrandi búlla, pínu pínu lítil aðeins tveir barstólar til að sitja við þarna inni. Á eftir þeim stað kemur svo Flamingo, stíliserað merki fyrir utan staðinn og þrjú borð, sem er plús.
Sófakaup hafa eitthvað látið á sér standa en við ætlum að bæta úr því hið fyrsta, svo við getum nú boðið fólki að horfa á nýja hvíta bjútifúl sjónvarpið okkar
8 ummæli:
Stórkostleg síða hjá ykkur og mjöööög frumlegt framtak ;)
Gangi ykkur annars vel í skólanum, er einmitt í mínum að láta mér leiðast.....
Mundu að það er líka hefð að hafa myndasíðu og sýna hið daglega líf, sérstaklega eitthvað sem bara þið hafið áhuga á.
Ég áskil mér allan rétt til að eyða öllum kaldhæðnum kommentum sem hingað rata....
Vef-Meistarinn
Gaman að geta fylgst með ykkur danmerkurdúllum:) knús og kveðja úr höllinni kv írishuld
Vúhú
Fylgist sko spennt með ykkur í vetur! Hafið það ótrúlega gott þarna úti finnst verst að hafa ekki náð að kveðja ykkur áður en þið stunguð af. En aldrei að vita nema ég komi og smelli á ykkur kossi í köben í vetur!
Ég fer til Norge á fimmt, er alveg að tapa mér úr spenningi ...Ætla rétt að von að þar verði eitthvað meira um rennandi vatn!
mvh
Heiða
Hæ hæ Tinna mín! Fáránlega langt síðan ég hef heyrt í þér. Vissi ekkert að þú værir að fara til Köben og því síður hvað þú ert að fara að gera þar... eins veit ég ekkert hver Jói er en ég geri ráð fyrir að það sé kærastinn :) En já það væri gaman að fylgjast með á þessu bloggi og endilega vertu dugleg að skrifa ;) Kveðja frá Þórhildi
Who the fuck is Jóti??!
Nei bara svona létt grín, enda eftir miðnætti og mín komin í svefngalsa. jájá.
Verður gaman að fylgjast með ykkur, endilega skella inn myndum af íbúðinni. Já og helst af Kebab líka!
Hva.. eru þið ekki enn búin að kaupa kubbinn?
kv. E
Skrifa ummæli