4. sep. 2007

Hlutafélag

Þegar ég kom út í morgun sá ég hvar hin víðfrægi Benneweis sirkus var byrjaður að koma sér fyrir beint fyrir framan stofugluggann hjá okkur hér á Hulgardsvej 122. Ekki gat ég þó komið auga á hann Jörund sirkusumba. Sennilega í fríi karlinn. Eða ekki vaknaður.
Gutti bróðir og Magga eru hjá okkur þar til á morgun. Mjög gaman að hafa þau. Gutti er voðalega spenntur fyrir sirkusnum og er frá því í morgun búinn að standa út við glugga og fylgjast gaumgæfilega með uppsetningunni. Alltaf verið svo mikið sirkusbarn.
Þau skötuhjú skelltu sér í dýragarðinn í Frederiksberg í gær og fannst að eigin sögn voða gaman. Alltaf verið svo mikil dýragarðsbörn.

Að öðru.
Mikið er nú þægilegt að vera komin aðeins í fjarlægð frá ruglinu á Íslandi. Læt nægja að skoða mbl.is annað slagið og að hlusta á rúv.is. Ignorence is bliss.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú minnist ekki einu sinni á mig! Fnuss!

Unknown sagði...

já, maður þarf nú ekki að fara frá Íslandi til að fylgjast ekki með

:-P

Ég veit ekkert hvað er um að vera á Íslandi...hvað þá í heiminum!? Hver er eiginlega þessi Osama? Ha, er Dabbi kóngur ekki kóngur lengur??

;)

Johann Hjartarson sagði...

Já og hún Hjördís systir mín var hérna um liðna helgi. Mikið sirkusbarn og dýragarðsbarn líka. Takk kærlega fyrir innlitið Hjördís - ávallt velkomin.

Ýrr varstu þá ekki búinn að frétta af fellibylnum Felix? Sérfræðingar telja jafnframt að fellibylurinn Gunni muni fylgja í kjölfarið. Æi.....þarf aðeins að slípa til.....

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir okkur, þið verðið að kíkja í sirkus og taka myndir! :-)

Kv. Gutti og Magga