10. sep. 2007

Fólk, fræði og gott kaffi

Þessa helgi hafa Árný, Raggi og Iðunn, litla skottan þeirra, verið hér í köpen og haldi okkur selskap yfir helgina. Þau gistu annarsstaðar og svo hittumst við í brunch og kaffi og mat og svona. Alveg yndislegt að hitta þau og svo vonandi förum við svo að drífa okkur til Árhúsa þar sem þau ala manninn.
Námið hefur annars tekið völdin að miklu og nær öllu leyti hér á Hulgårdsvej. Jói er að gera hópverkefni í skólanum þar sem þau eiga að hanna og gera allt sem við kemur svona garðhúsum eins og eru hér um alla borg. Mér heyrist hann alveg vera að massa þennan skóla, dagarnir eru alltaf að lengjast hjá honum þar, enda á að skila þessu verkefni á fimmtudaginn. Meðan hann er í skólanum þá sit ég hér sveitt yfir fræðibókum um pædagogisk antropologi, það er alveg heljarins lestur fyrir þessa tíma. Mæti tvisvar í viku í skólan og á þá að vera búin að lesa 100 og eitthvað bls fyrir tíman og svo fara verkefnin að koma líka, svo það er annasi mikið að gera hjá minni núna. Lesefnið er svona mest á dönsku en smá á ensku, öllum verkefnum má ég skila á ensku. Einn kennarinn sagði við mig að henni væri alveg sama svo fremi sem ég skilaði ekki á íslensku (svolítið skrítið, hélt að allir væru með ísl sem sitt annað eða fyrsta tungumál).
Við höfum loksins fjárfest í gæða kaffi frá riccos, ég ætla að fara að gæða mér á því svona áður en ég byrja lesturinn.

Góðar stundir

2 ummæli:

Unknown sagði...

Hmm, mig langar nú bara pínulítið aftur í skóla þegar ég les þetta.... og samt ekki! :)

Gott að heyra að þið plummið ykkur í skólanum...samt svolítið skrýtið að megi ekki skila á íslensku, en OK.

Nafnlaus sagði...

hej takk fyrir síðast, voða kósý að hitta "nørrebroíbúana"...ég er að huga að annari ferð til köben nú þegar....

árný