Las í einhverju blaði í dag að alkæda gaurarnir sem voru handteknir hér hafi ætlað sér að sprengja Nörreport lestarstöðina, ásamt mönnum og músum.
Hjúkk að ég tók hjólið með mér.
Tinna hefur tekið ástfóstri við ákveðinn kaupmann á ákveðnu horni hér skammt frá. Í sama húsi bjuggu meintir hryðjuverkamenn. Tilviljun?
Lét verða af því í dag að fá mér húðflúr, lítið og nett. Komst ekki inná heimabankann en fannst ég verða að gera eitthvað.
boof!
6 ummæli:
Úúú, til hamingju með tattoo-ið!
En já, ég heyrði þetta í fréttunum í dag, þ.e. að þeir ætluðu að sprengja Nörreport lestarstöðina. Svo er lögreglan líka að leita að fleiri mönnum sem ekki hafa náðst en eru taldir tilheyra þessum öfgahópi.
Þið skuluð bara hjóla, enga lest takk!
Er þá ekki heldur öruggt að hjóla í lest?
Gutti.
Burrum dusss!
Bið ykkur tvö að gera ekki okkar bloggsíðu að að ykkar einkasvæði til að reyna að vera sniðug.
VefMeistarinn kveður
vá þvílíkur brandari hjá gutta..... ég hélt að þetta fimmaurabrandara tímabil hjá honum myndi klárast í köben, nóg var af bröndurum þar.....
og til hamingju með tattoo-ið... fáum við ekki að sjá mynd??
þetta var ég, magga, hérna fyrir ofan... gleymdist óvart ;)
Skrifa ummæli