LOMO Renegade
Eftir að hafa skoðað og pælt heilmikið í þurrgöllum - ákvað ég að smella mér á galla sem heitir Renegade og er framleiddur af LOMO í Skotlandi. Merki sem ekki margir þekkja hér - en ég tók sénsinn - og sé ekki eftir því. Gallinn er bara fáanlegur í einni litasamsetningu - gult/svart. Hann er ekki Gore-Tex. Rennilásinn er þvert á bakinu og svo er pissulás að framan og tvöfalt lag þar sem svuntan fer undir. Háls- og úlnliðstúttur eru úr latexi - ásamt sokkunum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli