Jæja - orðið allt of langt síðan eitthvað gerðist hér.
Ég er alltaf að skoða nýtt dót - og ákvað að deila mínum pælingum hérna.
Í dag eru það skór frá FiveTen sem heita Water Tennie. Líta út fyrir að vera ekki of klossaðir - og ættu að komast fyrir í flestum bátum - fyrir utan kannski minnstu leikbátana. Þessi skór myndi passa fínt fyrir sjókajakróður - ekki síður en í strauminn.
Smá Old School fílingur.
Mjög tæknilegt allt saman.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli