18. okt. 2007

Smá yfirlit

Um síðustu helgi voru Sveinborg, Árný og Sara í Köpen og auðvitað var eitthvað kíkt í bæinn og í bjór. Virkilega gaman að fá þær svona í heimsókn, enda ég í fríi núna þessa vikuna. Ætlaði að vera ægilega duglega að læra til að vinna mér í haginn, það hefur nú ekki alveg gengið eftir en samt þó smá.

Ég er að fara að byrja á svona próf-verkefni í næstu viku, erum þrjár saman í hóp, gerum fyrst athugun og þurfum svo að vinna úr henni á fræðilegann hátt. Frekar spennandi þó svo þetta tengist ekki beint leikskóla ;). Munum sem sagt skoða interaction milli fólks sem selur Hus forbi og þeirra sem ganga framhjá. Þegar við klárum að vinna úr þessu og kynna þá er kúrsinn búinn og próf-ritgerð hefst í hinum kúrsinum. Það verður einstaklega fræðileg ritgerð, þarf að skoða eitthvað tiltekið atvik útfrá ákveðnum fræðimanni/mönnum, Focault, Weber, Durkheim eða einhverja aðra fræðikarla. Jebb hef bara lært um karla enn sem komið er.

Nú bráðum munum við svo líklegast breytast í spider-ofurfólk því við erum loksins byrjuð að klifra. Hinn fínasti klifurveggur í Norrebrohallen. Drifum bara í því að skrá okkur, kaupa skó og kalk, svo bara klifra og klifra og harðsperrur út um allt.

Med venlig hilsen

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að vera spider!
Gangi þér vel í verkefnunum!
Takk fyrir kveðjuna í dag!
Kv. Elna

Nafnlaus sagði...

já.. góð helgi...takk fyrir samveruna

árný

Ýrr sagði...

þegar maður kemst ekki á kayak, þá bara klifrar maður!

Tinna sagði...

Takk
Takk sömuleiðis
Ooo... kayak,klifra bara til þess að vera í einhverju formi þegar ég kemst aftur á kayak ;)