Næstkomandi föstudag er svokallaður J-dagur hér. Þá munu danir tollera alla þá sem bera nafn sem byrjar á J........og gefa þeim bjór sem sérstaklega hefur verið bruggaður í tilefni þessa merka dags.
(J)óa hlakkar til. (T)inna er minna spennt.
Ég hef verið að dunda við að gera viðamikla mannfræðirannsókn hér á flatlendinu, n.k. hliðarverkefni við skólann. Niðurstöðurnar eru vægast sagt sláandi:
- Spejder þýðir ekki könguló heldur skáti
- Klatreklub merkir klifurklúbbur
- Sprungið dekk er punkterað, svona eins og á Akureyri
- Uppáhaldsstaðurinn hennar Tinnu er fyrir framan spegilinn
- Uppáhaldsútvarpsþátturinn hennar er Spegillinn á rás1
- Uppáhaldsrit hennar er Der Spiegel
- Marsipan kaka er stundum kölluð Lort (kúkur)
- Ef ég bauna á Tinnu þá svarar hún um hæl: "spegla það"
- Arabar stama líka (Ostama bin Laden)
- Sören Kirkegaard hvílir í kirkjugarði
Þess ber að geta að rannnsóknin stendur enn yfir.
Að lokum, hver er maðurinn?
5 ummæli:
Hvernig á maður að geta séð hver maðurinn er? Hann er með sólgleraugu !!!
Tinna!
Vodalegur spenningur er thetta í thér.......viltu ekki leyfa ødrum ad reyna sig....
Guð ég missti mig,er enn með magaverk. Hvaða geimvera er þetta eiginlega? Bíð bara spennt eftir að sýna manninum myndina, held nú að hann geti þekkt sjálfan sig.
kv. vakxý
Þetta er ansi viðamikil rannsókn. Ertu með alla resource-a sem þar til að klára rannsóknina??
Er þetta BONO? ;)
Það er ljóst að þú ert á rangri hillu í lífinu, ættir alfarið að snúa þér að mannfræðinni, eða félagslegum málvísindum. En já hvur er maðurinn?? Augljóslega sólgleraugna-fan; Elton John, Bubbi Morthens?? Alla vega einhver rosalega svalur :)
Skrifa ummæli