Þvílíkar hamfarir hafa átt sér stað á Hulgaardsvej. Eitt stykki svefnsófi hefur ruðst hér inn. Einstaklega fallegur lítill IKEA sófi, ég vil meina að hann sé svona vonabí apaskins týpa, verst að við erum ekki með ferkantaða stellið þá væri smuga að taka alveg 80´ á þetta. Annars sómar hann sér vel hér í stofunni með finu púðunum og helkaða teppinu. Kubburinn góði er ekki enn kominn, veit ekki hvenær það gerist. Nóg af lýsingum á húsgögnum, nú er bara að fara að snurfusa, því von er á góðum gestum...
1 ummæli:
Ég bara skil ekki hvernig þið gátuð látið ykkur detta í huga að fara utan án stellsins, soldið einsog að gleyma passanum heima... kv. E
Skrifa ummæli