Jebb langt síðan síðast og alskyns fréttir.
Við höfum fengið nýja íbúð til leigu sem er mun ódýrari en sú sem við sitjum í núna og einnig betur staðsett í borginni. Hún er rétt við trianglet á Österbro.
Nú annars erum við Jóla Jói bara á fullu í skólanum og ég að vinna á Sushistað í Fredreksberg og líkar stórvel. Við höfum einnig ákveðið að vera hér í Jólaborginni yfir jólin. Þessi ákvörðun var tekin með hliðsjón af kreppu en samt einna helst náminu þar sem við bæði munum skila af okkur stórum verkefnum snemma í janúar.
Allra mestu fréttirnar eru nú samt þær að Eirún systir er að koma á föstudaginn með Önnu og Egil með sér. Þau ætla að vera yfir helgina og er mikill spenningur í herbúðunum á Hulgårdsvej
yfir og út
2 ummæli:
Verður frábært fyrir ykkur að fá stúfinn í heimsókn (og hina gestina).
Súrt að þið komið ekki til Íslands í desember. Hefði verið skemmilegt að hitta ykkur og svona. Við tökum í staðinn vel á fóðrinu hjá múttu.
Helgi.
Muna bara að borða hægt og njóta matarins.
Skrifa ummæli