Ætli Sparisjóðurinn sé til í að senda mér Stofnfjárbréfin mín í pósti? Get í það minnsta notað þau til að skeina á mér rassinn.
En við Tinna erum ekki af baki dottin. Fengum okkur heilan líter af Dumle ís, sem kláraðist á meðan við hlustuðum andaktug á Geira Smart flytja andvarp. Á eftir ætla ég svo að fá mér ostapopp.
Borða til að gleyma.
Á morgun kemur nýr dagur og þá ætla ég í ræktina.
2 ummæli:
Já við hefðum frekar átt að fá okkur flatskjá. Örugglega verstu kaup sem ég hef komið nálægt.
Tók Tinna þessa mynd af þér? :-)
Gutti
Nei, þetta er átrúnaðargoðið.
Skrifa ummæli