Sól og sumar og ég komin í frí, tíminn líður svo hratt. Á tímabili gat ég ekki bloggað um annað en analysispappíra og ritgerðir, en nú er það tímabil í pásu fram á næsta haust. Get ímyndað mér að fólk bíði spennt ;) Á meðan Jói situr sveittur inni í skólastofu nýt ég lífsins hér í Köben, glugga í nokkrar fræðibækur, fer á kaffihús og flatmaga í sólinni. Já, lífið er ljúft...
Í dag á að verða 28 stiga hiti og Joe hefur tekið sér pásu frá prófverkefninu svo við ætlum að skella okkur á kayak, svo í grill í aften.
Þar til næst
5 ummæli:
Til lukku og habbbdu það gott í sólinni góða. Mikið hlakka ég til að fara með þér í kaffihúsin í Köben í haust. Þarna hebbbdi amma Sigurlaug notið sín með sígaretturnar sínar, kaffið og bók ekki langt undan. Sérðu það ekki í anda? Smá að steyta görn á kjarngóðri íslensku við danska þjóna. Kær kveðja frá mömmu
Til hamingju kæra Tinna, hljómar dásamlega að vera búin. Ég var líka að skrifa undir leigusamning hérna í Cambridge og er ægilega lukkuleg með það.
Greinilega miklar breytingar i gangi hjá ykkur Berglind sem er frábært, hlakka til að heyra og lesa meira um þær.
Jú mamma ef þetta er ekki ekta veður fyrir ömmu þá veit ég ekki hvað, hef einmitt hugsað mikið til hennar (það er eitthvað með sól og kaffihús). Það verður nú líka æði að fá þig í heimsókn í haust.
elsku tinna mín, til hamingju með að vera komin í frí!
mikið vildi ég geta skottast til þín núna, bara aðeins til að hanga í sólinni og góða veðrinu með þér!
bíður betri tíma.
luv Sinna
Frí frí frí og aftur frí,
það eina sem ég vil er bara fríííí.
Frábært að geta spókað sig um í sólinni. Vonandi verður einhver sól þegar þú kemur heim. Tönuð í drasl, of kors.
Skrifa ummæli