Lífið gengur sinn vanagang hér á Hulgårdsvej, nú er sólin farin að skína enn meir og dagurinn að lengjast. Magnað vorveður þessa dagana, ég vil meina að það stefni í gott sumar... alla vega þangað til við förum til íslands.
Ég er núna alveg á yfirsnúningi í skólanum, analysis pappírar, ritgerð og munnlegt próf. Í gær var svo verið að benda okkur á það að fara að huga að næstu önn og það yrði mikill lestur í sumar. Já já undirbúningur fyrir næstu önn að hefjast ofan í allt annað, fékk vægt sjokk en er farin að sjá skýrt aftur, þetta reddast. Frábært líka að hugsa til þess að eftir ár verð ég komin með mastersgráðu í uppeldis og mannfræði.
Fitnessdk hefur núna undan farna viku fengið að finna fyrir okkur Jóa, jú jú við erum byrjuð í ræktinni, legg ekki meira á ykkur. Síðustu helgi var afmælistilboð, fitnessdk 7 ára og því kostaði fyrsti mánuðurinn 7 krónur, skelltum okkur auðvitað á tilboðið. Sjáum svo hvað verður.Ég hress að tala við pabba á skypinu.
Þar til næst
1 ummæli:
Mér finnst farið að líða óþarflega langt á milli blogga.
Kv Hulda Karen
Skrifa ummæli