4. feb. 2008

Tignes Val Claret... draumur í dós

Komin til Köben að nýju eftir æðisgengna snjóbrettaferð til Tignes Val Claret. Ferðin var algert brill þrátt fyrir 26 tíma rútuferð og hótelherbergi sem minnti á vinnubúðir. Smá beddi sem þurfti að draga annað rúm undan svo úr yrði tvíbreitt rúm (agalega hótel like), nokkrar brúnar rákir á einum veggnum (erum ekki viss hvaða efnablanda það var) svo til að kóróna herbergið sjálft var mynd af lest sem runnið hafði útúr lestastöð (sýndi hinn rétta anda herbergisins). En þrátt fyrir að bærinn liti út fyrir að vera eitthvað austur-þýskt gettó og hótelherbergið mjög spes voru brekkurnar æði. Svæðið sjálf er frábært skíðasvæði.

Við renndum okkur ca. 6-7 tíma á dag í sól og vetraryl nær alla daga, fórum í brettaparkið (þar sem ég sýndi óneitanlega mögnuð tilþrif) og ferðuðumst um svæðið. Vorum bara með nesti í poka og heitt á brúsa og komum okkur fyrir á góðum stað til kaffineyslu. Síðasta daginn snjóaði ferlega æðislegum púðursnjó og breyttumst við í börn eða kannski frekar unglinga. Brunuðum massíft utanbrauta og púðruðum og ulltum um í brekkunum. Náðum frábæru rennsli þennan dag. Jón Skírnir kíkti á okkur frá Sviss og renndi með okkur síðustu tvo dagana, þá voru engin vettlingatök og við náðum þvílíkt að þrykkja brekkurnar.

En eins og fyrr sagði þá erum við aftur mætt til KBH og byrjuð að lesa og læra á fullu. Þessi önn mun snúast hjá mér um Antropolokiske og Pædagogiske begrebsliggörelse og Jói mun demba sér á bólakaf í raðhúsagerð.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er ferlega æðislegur púðursnjór einhver sérstök tegund af snjó?

..Slydda - Púðursnjór - Ferlega æðislegur púðursnjór - Haglél...

Kv.
Gutti

Nafnlaus sagði...

En frábært!
Kv. Elna

Nafnlaus sagði...

Frábært að heyra.

Glæsileg myndin af þér í snjógallanum hans pabba, Tinna! ;)

Kv.
Hjördís hetja

Tinna sagði...

Hefði átt að fá gallann lánaðann fyrir ferðina, þá hefði ég nú tekið mig vel út í brekkunum ;)

Hann vill nú örugglega ekki missa gallann úr landi, skil það nú vel.