Skelltum okkur á myndina Foreldrar í síðustu viku, virkilega góð mynd.
Fórum til Boga í matarboð á lau. þar steikti maður matinn sinn sjálfur, ansi hreint gaman.
Kíktum svo á litlu tvibbana á sun. þvílíkir endalausir snúðar sem þeir eru.
Svo er von á megninu af matarklúbbskonum (6 af 9) yfir helgina, mun sú fyrsta koma í hús á fim. svo týnast þær inn yfir helgina. Verðum allar samankomnar á lau. og þá verður gleði. Stúlkurnar munu allar gista hjá okkur, búin að redda stórri vindsæng og allt reddí.
Skólinn er samur við sig, hjá okkur báðum.
þar til næst...
2 ummæli:
miss tinnsí langar þig ekki að skoða hinar tótalí bjútífúl myndir mínar/okkar? vesgú:
http://www.flickr.com/photos/85731030@N00/
ÚÚÚ það hefur væntanlega verið helljarins fjör á ykkur klúbbavinkonunum um helgina??
Var gæsuð á lau., það var bara endalaust gaman :)
Kv. Elna
Skrifa ummæli