4. des. 2007

Well, well

bara kominn 4.des. hó hó hó

Ég er á fullu að lesa og lesa og skrifa og skrifa, búin að finna þetta yndislega bókasafn þar sem ég er umvafin bókum. Þetta er ótrúlega kósý, það er bara eitt borð á milli bókahillna sem ná frá gólfi upp í loft og lofthæðin er ekkert smá. Örugglega hundrað ára gamalt bókasafn, jemeinaða ;)
Jói er að læra að teikna, svo hann teiknar þá, samt aðallega í tölvu.

Köben er kominn í sinn jólabúning, alla vega búið að skreyta, tendra ljós og svona. Veðrið er samt meira haust en vetrarveður, ef ég á að greina það eitthvað.

Jebb jebb annars bara allir hressir, like always.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel í lestri og skrifum.
Hugsaði mikið til þín áðan, var að setja rautt lakka lakk á mig fyrir jólaboðið í vinnunni í kvöld og það minnti mig á þig :)
Ert örugglega dugleg að smakka á jólabjórnum eins og við vorum forðum daga í Dene :)
Bestu kveðjur og vonandi að við hittumst eitthvað ef þú ert á heimleið yfir jólin :)
Kv. Elna

Nafnlaus sagði...

Hvernig gekk smákökubaksturinn?

Kveðja mamma

Tinna sagði...

líka svona agalega vel bara, þarf nú samt að finna eitthvað betra súkkulaði.
Smákökurnar fleyta mér nú langt í ritgerðasíðunum.