11. des. 2007

Kvikmyndagerd

Í gær sótti ég mér lítid og krúttlegt forrit sem gerir einfeldningum kleift ad klippa til vídjó og setja tónlist inná. Hef haft áhuga á thessu ansi lengi. Reyni t.d. alltaf ad finna tónlist sem hæfir thví sem ég er ad gera hverju sinni. Thannig passar ótrúlega vel ad hlusta á Sigur Rós um leid og ég hjóla í eda úr skólanum í rigningu. Rigningin virkar thá sem n.k. effect, setur punktinn yfir i-id. Ég hlustadi reyndar undantekningarlaust á Sigur Rós sl. vor thegar ég var ad fljúga á milli Reykjavíkur og Egilsstada. Ef thad var bjart yfir og gott útsýni thá leid mér oft eins og ég væri staddur inní einhverju myndbandinu theirra og gat alveg gleymt mér. Kannski einhvers konar dagdraumur. Ekki minnkadi heldur thjóderniskenndin vid thetta.

En aftur ad thví sem ég ætladi ad segja. Ég sem sagt nádi í forrit frá Microsoft sem heitir Movie Maker 2. Aldrei thessu vant thá las ég megnid af leidbeiningunum ádur en ég byrjadi ad fikta. Hefdi alveg getad sleppt thví, svo einfalt er forritid. Bjó til mitt fyrsta listaverk og setti tónlist vid. Ansi hreint skemmtilegt og audvelt ad gleyma sér í thessu. Afraksturinn má sjá á www.playak.net í videorekkanum undir nafninu Sjoa 2007.

Núna sit ég í skólanum í verkefnavinnu. Eigum ad kynna á føstudaginn og erum ekki nærri thví tilbúnir. Hef trú á thví ad thetta muni reddast, hefur gert thad hingad til.

10-4

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Dæmalaust stórkostlegt myndband, ágæti bróðir. Forvardaði því á Friðrik Þór og feita leikarann úr Skyttunum, hann sem prumpaði hjá stelpunum og sagði svo "eitt-núll!". Þekkti raunar ekki lagið - voru þetta Jóel og Air Supply að djamma í Húnaveri?
Bið að heilsa ykkur. Helgi.

Johann Hjartarson sagði...

Ef thú hefdir horft á myndbandid til enda thá hefdirdu getad séd hvada lag thetta er. Mig grunar reyndar ed thú hefir ekki horft á thad heldur sért bara ad reyna ad vera snidugur.

En svona grínlaust, notardu eitthvert forrit til ad klippa til vídjóin hjá thér?