Kaffið komið í bollann og komið að því að blogga.
Vikan sem er að líða er búin að vera frekar erfið hjá mér. Hópurinn minn átti að framleggja verkefnið í gærmorgun, sem við gerðum, en undirbúningurinn gekk ekki alveg þrautalaust fyrir sig. Hópurinn minn hefur einhverra hluta ekki fúnkerað nógu vel. Ég er búinn að blóta svo mikið síðustu daga(í hljóði að sjálfsögðu) að Siggi Hall hefði roðnað. (hér er ekki átt við matreiðslumanninn heldur afa minn heitinn)
Verkefnið er að hanna hús og staðsetja á lóð. Þetta er einbýlishús á tveimur hæðum staðsett í Utterslev Mose, grænu svæði hérna rétt hjá okkur Tinnu, svæði sem búið er að friða. Við eigum að teikna húsið nánast eingöngu í forriti sem heitir Revit og er tiltölulega nýtt, reyndar frá sama framleiðanda og Autocad en minna í sniðum og einfaldara. Vegna staðsetningar hússins eru gerðar ákveðnar kröfur um útlit þess. Þakið skal vera klætt með rauðum þakflísum og veggirnir hlaðnir úr "gulum" múrsteini. Svo eru alls konar aðrar kröfur um loftræstingu og annað skemmtilegt.
Í gær kynntum við svo verkefnið fyrir kennurunum og útskýrðum m.a. hvers vegna við höfðum ákveðið að velja hina eða þessa lausnina. Okkur gekk bara vel, gátum svarað spurningum kennaranna án þess að hiksta. Mér tókst að blaðra um fjórar mismunandi normalkonstrúktsjónir og knudepunkte án þess að svo mikið sem depla auga. Finn mikinn mun frá síðustu kynningu þar sem ég var vægast sagt mjög stressaður.
Næsta kynning er svo eftir fimm vikur, að mig minnir, og þá á verkefnið að vera tilbúið til að senda inn til umsóknar hjá byggingayfirvöldum með öllu sem því fylgir. Það verður eflaust mikið fjör.
Við Tinna erum að fara niður í Jónshús á eftir til að taka þátt í verkefni hjá honum Boga vini mínum. Þetta er einhvers konar stjórnunarverkefni fyrir kúrs sem hann er í og okkur bauðst að vera tilraunarottur, sem við þáðum með þökkum. Ekki á hverjum degi sem manni er boðið uppá Hæsí og kex fyrir að svara nokkrum laufléttum spurningum. Fínt að skreppa aðeins niður í bæ í sólinni og hafa það huggulegt. Svo kannski förum við að klifra á eftir. Hver veit? Það gæti þó farið svolítið eftir því hversu mikið magn við innbyrðum á tilraunastofunni.
...............ætlaði að segja eitthvað meira, held ég.......
....já, svarið við síðustu myndagetraun er að sjálfsögðu Haraldur Jónsson frá Brattavöllum. Haraldur þessi er næst-innsti koppur í búri Framsóknarflokksins í Dalvíkurbyggð. Þá er hann mikill áhugamaður um bindishnýtingar auk þess að vera stjórnarmaður í Brumm MC, mótorhjólaklúbbi hreppsins.
En........hvaða andlit eru kunugleg á þessari mynd:
4 ummæli:
Ákaflega forvitnileg mynd. Er þetta ef til vill huldu atkvæði Framsóknarflokksins saman kominn í Grettislaug? Varinn af hermönnum að handann?
Kveðja HS
Tja....verður að viðurkennast að þetta er soldið sveitó....og myndin þá kannski tekin á miðstjórnarfundi hjá þeim huldumönnum?
Veit ekki til þess að Tinna sé í Framsóknarflokknum en hún er sannarlega á myndinni, og í pottinum.
Og fyrir þá allra forvitnustu þá heitir laugin Ólafslaug og er sunnan undir Hofsjökli, skammt frá Þjórsárverum. Hvers vegna hún heitir Ólafslaug veit ég ekki.
jah, væri kannski hægt að sjá eitthvað út úr myndinni ef hún vær örlítið stærri....
Skrifa ummæli