Ákváðum að slá öllu upp í kæruleysi í gær og skelltum okkur á bíó á Ten Canoes, krúttleg og áhugaverð, vorum lengi á eftir að velta fyrir okkur boðskap myndarinnar. Ég tel að boðskapurinn sé að maður eigi að vera þolinmóður, fínn boðskapur það.
Menningin er alveg að fara með okkur því á föstudagskvöldið ætlum við að sjá heimildarmyndina um Sigur rós og á laugardaginn ætluðum við svo á tónleika með Múgison en þeir falla niður og okkur er boðið upp á Eivöru Páls í staðinn. Pínu súrt, þetta er nú ekki alveg það sama, þannig að við erum svona að taka stöðuna, fá endurgreitt eða bara að skella sér. Við höfum hvorugt farið á tónleika með henni áður, svo afhverju ekki að fara... en samt...
Nú þrátt fyrir alla þessa menningarviðburði í lífi okkar er nú skólinn enn til staðar. Ég er að fara að klára Modul 2 á morgun. Pínu stress farið að gera vart við sig, ég á að fjalla um smá brot í verkefninu sem ég hef verið að gera síðustu vikur (þau ykkar sem fylgjast með vita um hvað ég er að tala:). Jebb stend fyrir framan bekkinn í tíu mín. og tala um sociale rum, sociale position, sociale hierarki, kropens sprog og að lokum sælgertyper. Stend eða fell með þessu !!!
Smá gáta að lokum:
Hver er sá veggur víður og hár,
allur settur röndum.
Gulur, rauður, græn og blár,
gerður af meistarans höndum.
7 ummæli:
Regnboginn
Halló, halló bara með rétt svar og allt, en ekkert nafn.
Þá er nú erfitt að veita verðlaunin ;)
Því miður ekki rétt!
Hér er að sjálfsögðu átt við eitthvað sem ég hef málað, enda málarameistari með bevís í litafræði.
.....mátti samt reyna
þetta var rosalega létt gáta tinna :) haha....
en já, ég á nýja diskinn með Eivör og mér finnst hann æði... væri sko alveg til í að fara á tónleika með henni :)
kv Magga
Hva áttu vísnabókina?!?! ;)
Skellið ykkur á Eivöru, hún er fín. Séð hana tvívegis. Helgi.
Já....svolítið mikið létt gáta í þetta skiptið krakkar!
En sniðugt að hafa svona gátur með færslunum þá kommentar fólk miklu frekar....ikkeosss? (ekki víst að þið københavnerne skiljið "ikkeoss" það er líka ferleg JÓSKA)
árný
Skrifa ummæli