Ótrúlegt en satt, það er mánudagur.
Ég klárarið módulinn (kúrsinn) með glans á fimmtudaginn. Fengum rosa góða krítik og fólk var brosandi þegar við stigum af sviðinu. Ég tek þetta fram vegna þess að hinir fyrirlestrarnir voru frekar þurrir og svo var loftið þungt í stofunni (enda opna danir ekki glugga).
Nú svo er það menningin. Heima er massa góð mynd enda sáumst við Jói í myndinni (3x), skrýtið að okkar var ekki getið í takk-listanum.
Á laugardaginn enduðum við svo með því að fara á kaffihús og ílengjast þar, sem sagt Eivör var án okkar.
Í gær fórum við í mat til Nonna og Nadíu, þar sem Nonni fór á kostum í eldhúsinu við ritzbollugerð. Við bíðum annars spennt eftir að frumburðir þeirra komi í heiminn, en biðin verður eflaust ekki svo löng...
Í lokinn:
Hvaða lag er þetta og hvaða ár var það í undankeppninni á Íslandi, fyrir Eurovision?
Lífið yrði dans oooo
paradísar dans oooo
Án þess væri lífið litlaus tilvera...
8 ummæli:
Til lukku með þennan árangur Tinna mín. Veit ekki hvernig maður segir þetta pa dansk.
Í hvaða mynd eru þið filmstjörnur? Voru þið tilnefnd til Edduverðlauna? Bara spyr nennti ekki að horfa á þann ófögnuð.
Varðandi júrólag dettur mér bara í hug Edda Borg í laginu Lífið er lag.... ca 1992.
Kveðja mútter
Til lykke Tinna.
I hvilken film er I stjerner? Var I nominered? Kun spørgsmål, fordi jeg kan ikke lide den lort.
Om eurosangen tænker jeg om Edda Borg i den sang Livet er en sang....cirka nittenhundredto og halvfems.
Hilsen mutter
Vil byrja á því að þakka honum Jóa mínum fyrir að þýða skilaboðin frá mömmu, hefði annars aldrei skilið þau.
Verð að hryggja móður mína með því að svarið er ekki rétt, að þessu sinni. Lífið er lag var líka í undankeppninni 1987.
Fólki er enn heimild að svara
Lífid er lag er med hinni gedthekku sveit Módel, hverrar medlimir voru m.a. Eiríkur Hauksson og Gunnlaugur Briem.
Módel starfadi á áttunda áratugnum - stutt sem betur fer!
Vonandi er thessi bloggsída ekki ad breytast í einhvers konar júróvisjón halelúja.
ég er alveg tóm með þetta lag...
en til lykke með kúrsinn, auðvitað brillerar þú, en ekki hvað?
Hæ, hæ Tinna og Jói. Ég, Grétar og Guðni Már verðum í Köben um helgina. Gaman væri að hitta ykkur í bænum ef þið hafið tíma. Við erum með GSM 893-7919. Kv. Guðný
Elsku Tinna.
Til hamingju með kúrsinn og hvað allt gékk vel, ánægð með þig stelpa!
Ég tel mig nú vera mikinn Evrovision aðdáanda en ég hef ekki hugmyn um hvaða lag þetta er.
Fylgist spennt með þegar lagið verður afhjúpað
Kveðja Auður
Kannski er þetta aðeins of erfitt lagabrot til þess að starta með, en hin gátan mín var víst svona agalega auðveld.
Þetta er sem sagt brot úr laginu Í tangó sem Bó Hall og Edda Borg fluttu í undankeppninni árið 1988.
Múttís var sem sagt með einn réttann flytjanda, þó svo ekki hafi verið spurt um það ;)
Skrifa ummæli